fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Eliza og Guðni á leið til Japans – Verða viðstödd krýningarhátíð Japanskeisara

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 17. október 2019 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú halda til Japans í næstu viku og verða viðstödd krýningarhátíð Naruhito Japanskeisara þriðjudaginn 22. október.
Forsetahjón munu taka þátt í opinberum viðburðum í tengslum við krýningarhátíðina ásamt fjölmörgum öðrum þjóðarleiðtogum hvaðanæva að úr veröldinni.

Þau sitja m.a. hátíðarkvöldverð í keisarahöllinni að kvöldi 22. október og kvöldverð Shinzo Abe forsætisráðherra til heiðurs Naruhito Japanskeisara að kvöldi miðvikudagsins 23. október. Þá mun forseti Íslands eiga fundi með Shinzo Abe forsætisráðherra og með Tadamori Oshima, forseta fulltrúardeildar þingsins, og þingmönnum.

Þá mun forseti einnig eiga fund með Shinako Tsuchiya, formanni vinafélags Íslands á japanska þjóðþinginu, og öðrum þingmönnum í vinafélaginu.

Forseti Íslands heimsækir Tokyo háskóla fimmtudaginn 24. október ásamt Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands og situr fund með Makoto Gonokami rektor skólans og öðrum forsvarsmönnum hans. Í kjölfarið heldur forseti opinberan fyrirlestur í boði Tokyo háskóla. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og ber heitið: The Might of the Weak. The Role of Small States in International Relations and the Case of Iceland.

Eliza Reid forsetafrú mun heimsækja Sophia háskólann fimmtudaginn 24. október og  leiða þar hringborðsumræður um jafnréttismál og Ísland með nemendum skólans og kennurum.

Þá mun forseti Íslands jafnframt eiga fundi með Kiyoshi Yamada rektor Tokai háskólans, snæða hádegisverð með Shunichi Suzuki, þeim ráðherra í ríkisstjórn Japans sem stýrir málefnum Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Japan á næsta sumri, og Yasuhiro Yamashita, forseta Ólympíunefndar Japans, og heimsækja Sasakawa friðarstofnunina.

Þá býður Elín Flygenring sendiherra til móttöku til heiðurs forsetahjónum í sendiráði Íslands í Japan síðdegis fimmtudaginn 24. október.

Á leið sinni til Japans mun forseti Íslands eiga stutta viðdvöl í Vínarborg laugardaginn 19. október og sækja frumsýningu í Burg leikhúsinu á verkinu Die Edda eftir Mikael Torfason í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki