fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Nýjar vendingar í Braggamáli – Skellt í lás og HR verst svara

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. september 2019 21:01

Bragginn við Nauthólsveg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Bragginn Bar og Bistro hefur skellt í lás. Þetta kemur fram í frétt Hringbrautar. Háskólinn í Reykjavík verst svara um málið.

Háskólinn í Reykjavík leigir braggann af Reykjavík, líkt og DV hefur áður greint frá. HR framleigði svo húsnæði til veitingahússins Braggans Bistró sem opnaði í júní á síðasta ári.

Sjá einnig:  Engin leiga verið greidd af Bragganum

Fyrirsvarsmaður Braggans Bistró greindi frá því október að óvægin umfjöllun um frammúrkeyrslu Reykjavíkurborgar í Braggamálinu hefði ekki haft áhrif á rekstur veitingahússins, þvert á móti væri það kostur við umræðuna að Bragginn væri nú á allra vitorði.

Í kvöld greindi Hringbraut þó frá því að Bragginn Bistró hafi hætt rekstri. Lokað hefur verið fyrir síma staðarins, heimasíðu og facebook-síðu.  Hringbraut hefur eftir Facebook-pistli Daða Agnarssonar, fyrirsvarsmanni Braggans Bistró, að borgarfulltrúar Reykjavíkur hafi komið óorði á Braggann.

Óvægin umræða um vinnustaðinn þeirra hefur gert það að verkum að þau þurfa að fara að afsaka staðinn, sinn eigin vinnustað. Þetta er fólk sem þarf að svara fyrir mistök annara, svara fyrir óábyrga umræðu stjórnmálamanna.“

Samkvæmt Daða störfuðu 18 manns á veitingastaðnum.

Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri hjá HR, sagði í samtali við blaðamann Hringbrautar að HR hefði þegar samið við nýjan rekstraraðila en varðist þó frekari spurninga um hvers vegna Bragginn bistró hafi hætt rekstri.  Eins neitaði forstöðumaður markaðs – og samskiptasviðs HR að svara spurningum.

Braggamálið svonefnda var eitt af stærsta fréttamálinu á síðasta ári. Kostnaður við að gera upp Bragga í Nauthólsvík hljóp hundruðum milljóna fram úr áætlunum og hefur meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur sætt harðri gagnrýni vegna málsins. Samkvæmt innri endurskoðun Reykjavíkurborgar var kostnaðareftirliti ábótavant og bæði reglur, lög og verkferlar virt að vettungi.

Sjá einnig: Braggaskýrslan birt

Braggablús borgarinnar: Náðhúsið kostaði 46 milljónir

Það helsta sem þú þarft að vita um braggamálið – Spurt og svarað

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Framboð Viktors gilt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar