fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433

Kante viðurkennir að liðið sé í vandræðum

Victor Pálsson
Mánudaginn 23. september 2019 21:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

N’Golo Kante, leikmaður Chelsea, viðurkennir að liðið hafi ekki byrjað tímabilið nógu vel.

Kante spilaði með Chelsea um helgina er liðið tapaði 2-1 heima gegn Liverpool í úrvalsdeildinni.

Chelsea er aðeins búið að næla í átta stig af 18 mögulegum og hefur fengið á sig 13 mörk í sex leikjum.

,,Þetta er ekki frábær byrjun, það er mikil vinna framundan,“ sagði Kante við heimasíðu Chelsea.

,,Við erum ekki þar sem við viljum vera en við getum barist og breytt því í næstu leikjum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt