fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fókus

Miss Universe Iceland 2017

Undirbúningur hafinn fyrir fegurðarsamkeppnina

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 27. maí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátttakendur í keppninni um Miss Universe Iceland 2017 eru nú byrjaðir í undirbúningi fyrir keppnina, sem haldin verður mánudaginn 25. september næstkomandi í Gamla bíói. Í ár taka 20 stúlkur víðs vegar að af landinu þátt.

Umboðsmaður keppninnar hér á landi er athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir og Bandaríkjamaðurinn Jorge Esteban. Þau kynntust fyrir nokkrum árum þegar vinkona hans leigði íbúð móður Manuelu í gegnum Airbnb. „Jorge hefur starfað í kringum fegurðarsamkeppnir í fjölmörg ár og hann setti sig í samband við mig eftir þessa ábendingu frá vinkonu hans,“ segir Manuela. Síðar lentu þau saman í flugi til Bandaríkjanna og létu færa sig saman. „Þá ræddum um tækifæri á þessum vettvangi hér heima og í kjölfarið ákváðum við að sækja um Miss Universe fyrir Ísland og fengum, þannig að árið í ár er í annað sinn sem við höldum keppnina.“

Þema keppninnar í ár er 24K Magic
Þema keppninnar Þema keppninnar í ár er 24K Magic

Manuela þekkir sjálf vel heim fegurðarsamkeppna en hún vann Ungfrú Ísland árið 2002. Í fyrra var það Hildur María Leifsdóttir, Miss Glacier Lagoon, sem bar sigur úr býtum í Miss Universe Iceland og tók hún þátt í aðalkeppninni á Filippseyjum í janúar 2017. Í ár taka 20 stúlkur þátt og fjórar þeirra endurtaka leikinn frá því í fyrra.

Hildur María Leifsdóttir vann keppnina 2016.
Sigurvegarinn 2016 Hildur María Leifsdóttir vann keppnina 2016.

„Þær fjórar sem tóku þátt í fyrra, höfðu forgang inn aftur,“ segir Manuela. „Í ár verður ný dómnefnd, allt erlendir gestir eins og í fyrra.“

Það er Aníta Ísey Jónsdóttir sem sér um sviðsmynd líkt og í fyrra og má búast við spennandi keppni í september. Birta mun fjalla nánar um keppnina og alla keppendur eftir því sem nær dregur.

Vinkonurnar Jenný Sulollari, 23 ára Miss Gullfoss, og Dagbjört Rúriksdóttir, 22 ára Miss East Reykjavík.
Töff vinkonur Vinkonurnar Jenný Sulollari, 23 ára Miss Gullfoss, og Dagbjört Rúriksdóttir, 22 ára Miss East Reykjavík.

Mynd: Björn Blöndal

Lilja Dís Kristjánsdóttir, 22 ára Miss Mosfellsbær, Helena Hrönn Haraldsdóttir, 19 ára Miss Western Iceland, og Viktoría Diljá Eðvarðsdóttir, 20 ára Miss Sólfar.
Spenntar að hefja undirbúning Lilja Dís Kristjánsdóttir, 22 ára Miss Mosfellsbær, Helena Hrönn Haraldsdóttir, 19 ára Miss Western Iceland, og Viktoría Diljá Eðvarðsdóttir, 20 ára Miss Sólfar.

Mynd: Björn Blöndal

Ragnhildur Guðmundsdóttir, 22 ára Miss Breiðholt, Louby Idrisi, 23 ára Miss Capitol Region, og Tanja Rós Viktoríudóttir, 24 ára Miss Grafarvogur. Ragnhildur tók einnig þátt í keppninni í fyrra.
Flott þrenna Ragnhildur Guðmundsdóttir, 22 ára Miss Breiðholt, Louby Idrisi, 23 ára Miss Capitol Region, og Tanja Rós Viktoríudóttir, 24 ára Miss Grafarvogur. Ragnhildur tók einnig þátt í keppninni í fyrra.

Mynd: Björn Blöndal

Tsomo Batbold, 27 ára Miss West Iceland, Sunna Dögg Jónsdóttir, 20 ára Miss Reykjavík, og Ester Elísabet Gunnarsdóttir, 19 ára Miss Hafnarfjörður.
Glæsilegar Tsomo Batbold, 27 ára Miss West Iceland, Sunna Dögg Jónsdóttir, 20 ára Miss Reykjavík, og Ester Elísabet Gunnarsdóttir, 19 ára Miss Hafnarfjörður.

Mynd: Björn Blöndal

Móeiður Svala Magnúsdóttir, 19 ára Miss Crystal Beach, Arna Ýr Jónsdóttir, 22 ára Miss Northern Lights, og Andrea Sigurðardóttir, 23 ára Miss Kópavogur. Arna Ýr var valin Ungfrú Ísland 2015 og Ungfrú EM 2016. Andrea lenti í þriðja sæti í Miss Universe Iceland í fyrra.
Vanar vinningssætum Móeiður Svala Magnúsdóttir, 19 ára Miss Crystal Beach, Arna Ýr Jónsdóttir, 22 ára Miss Northern Lights, og Andrea Sigurðardóttir, 23 ára Miss Kópavogur. Arna Ýr var valin Ungfrú Ísland 2015 og Ungfrú EM 2016. Andrea lenti í þriðja sæti í Miss Universe Iceland í fyrra.

Mynd: Björn Blöndal

Mynd: Björn Blöndal

Heimasíða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni
Fókus
Í gær

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg