Teymi vísindamanna frá National Taiwan háskólanum setti fram æfingar sem geta gagnast þeim vel sem eru með hið svokallaða fitugen. Þetta gerðu þeir í rannsókn sem þeir unnu varðandi erfðafræðilegar ástæður offitu.
Besta æfingin er hlaup að mati vísindamannanna. En fyrir þá sem eru lítt hrifnir af hlaupum þá nefna þeir einnig til sögunnar langa jógatíma, gönguferðir, hraða göngu, standarddans og fjallaklifur.
Hjólreiðar, teygjuæfingar og sund hafa hins vegar ekki sérstaklega mikil áhrif fyrir þá sem glíma við erfðafræðilega hlið offitu.
18.424 fullorðnir tóku þátt í rannsókninni. Fólkið var á aldrinum 30 til 70 ára.