fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fókus

Logi Bergmann um Costco: „Eins langt frá kaupmanninum á horninu og hugsast getur“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 27. maí 2017 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta voru tímar þar sem fólk labbaði út í búð, gjarnan með innkaupanet, og keypti í matinn. Það kostaði bara það sem það kostaði. Í fimm hundruð metra radíus frá heimili mínu voru sennilega sex eða sjö matvöruverslanir, sem reyndar komu og fóru. Á Grensásveginum voru tvær, ein í Grímsbæ, Réttarholtsvegi og Tunguvegi. Svo voru líklega einar þrjár á Háaleitisbrautinni. Öll hverfi áttu sína verslun.“

Þetta segir Logi Bergmann í pistli á Vísi þar sem hann fjallar um komu Costco og rifjar upp hvernig verslun var háttað á hans æskuárum:

„Flestar voru þetta litlar búðir, gjarnan kenndar við kaupmanninn. Nágrannar voru með reikning og það var fullkomlega eðlilegt að senda barn útí búð að kaupa pakka af Camel og gulan Braga. Enginn velti því fyrir sér hvort eitthvað í hillunni væri útrunnið, „best fyrir“ var framandi hugtak. Ef það leit út fyrir að vera í lagi, þá var alveg hægt að borða það.“

Logi bendir réttilega á að flestar litlar búðir hafi verið kenndar við kaupmanninn á horninu. Í bakaríinu var hægt að fá franskbrauð, rúgbrauð og normalbraut en ekkert „sólkjarna sjökornarugl.“ Í Jónsarbúð fékk Logi svo fyrsta frostpinnann og drakk Miranda, Fresca og Póló. En með tilkomu Hagkaup lækkaði matarverð og kaupmönnum fækkaði og á endanum gerði Bónus út af við hann. Í dag eru aðeins nokkrir eftir. Við söknum kaupmannsins, nándarinnar og félagsheimilisins segir Logi.

„Costco, sem er þarna úti í rassgati, er eins langt frá kaupmanninum á horninu og hugsast getur. Það eru meiri líkur á að mæta hjólreiðamanni á leið upp Grensásveginn en að einhver fari gangandi í Costco. Í stað persónulega félagsheimilisins er komið skírteini með mynd. Það er slegist um kerrur. Notalega nándin breyttist í tólf þúsund fermetra af hlutum sem við vissum ekki að okkur vantaði. En verðum að fá þá þegar við sjáum þá. Með þessu kemur ný tegund af sparnaði: Að kaupa okkur eitthvað sem við þurfum ekki, af því að það er ódýrara en annars staðar. (Það er samt sem áður enn þá góð regla að kaupa ekki hluti bara til að kaupa. Það er nefnilega sóun.)“

Yfirlætisfulla fólkið

Logi beinir svo orðum sínum til þeirra sem hafa agnúast og gert grín að þeim sem hafa beðið í röð eftir að komast inn í Costco. Um þá segir Logi:

„En svo er alltaf hópurinn sem þarf, á yfirlætisfullan hátt, að gera grín að fólki sem getur ekki hamið sig. Mér finnst það eiginlega miklu glataðra en fólkið sem er að pissa í buxurnar af spenningi yfir því að það sé komin ný búð. Það er rétt að taka það fram að ég hef ekkert á móti þessu. Ég er sjálfur eins og barn í nammibúð þegar ég kemst í raftækjaverslun. Kandíflossvélin og súkkulaðigosbrunnurinn í bílskúrnum segja allt sem segja þarf. Og það er ekki eins og ég hefði ekki komist af án ryksugu- og skúringaróbóta. Ég er alls ekki í neinni stöðu til að tala niður til þeirra sem fylla Costco. En ég held að ég bíði samt aðeins með að fara að skoða þetta þangað til að ég verð búinn að laga til í geymslunni. Og bílskúrnum.“

Hér má lesa pistilinn í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni
Fókus
Í gær

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg