fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Baldur og Trausti dæmdir – Rifrildi um dóp endaði með ósköpum: „Vantaði á vörina“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 11. apríl 2019 11:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Kolbeinsson og Trausti Rafn Henriksson voru dæmdir í 2 ára og sex mánaða fangelsi í lok síðasta mánaðar fyrir líkamsárásir í fangelsinu að Litla-Hrauni.

Baldur og Trausti réðust í sameiningu á samfanga frá Marokkó sem þeir kýldu ítrekað í höfuð og líkama, tóku hálstaki, og stöppuðu á.  Þolandinn hafði verið á körfuboltavelli á útisvæði Litla-Hrauns, einn að leik, þegar Baldur og Trausti réðust á hann með höggum og spörkum. Heimildir DV innan fangelsisins herma að pilturinn hafi verið laminn, ekki vegna þjóðernis hans heldur fremur vegna dólgsháttar hans við aðra fanga.

„Eftir að A[þolandi] hafnaði aftur í gólfinu reyndi ákærði Baldur að girða niður um hann buxurnar, setist síðan klofvega yfir bók hans og kýldi hann ítrekað með báðum höndum í höfuðið þar til hann missti meðvitund, en á meðan stappaði ákærði Trausti Rafn þrívegis á höfði A og sparkaði einu sinni í höfuð  hans.“

Þolandi hlaut heilahristing, mikið mar, húðáverka, bólgur og tvær tennur losnuðu.

Sjá einnig: Baldur og Trausti lúbörðu hælisleitandann

Baldur og Trausti voru einnig ákærðir fyrir brot sem þeir frömdu ekki í sameiningu. Trausti var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og Baldur fyrir aðra líkamsárás.

Trausti snöggreiddist þegar fangaverðir sögðu honum að leita af lyklunum að klefa sínum einn daginn. Hann beið eftir að fangavörður opnaði  hurðina og grýtti stól í hann.

„Eftir þetta hafi ákærði ógnað fangavörðum með röri af ryksugu og fóru fangaverðir við svo búið af ganginum, en þeir komu aftur og svo segir að þegar ákærði hafi verið leiddur gegnum  dyrnar  út  af  ganginum  þá  hafi  hann  hrækt  í  andlit.“

Baldur réðst á Styrmi Haukdal Snæfeld Kristinsson og beit stykki úr efri vör hans.

„Hlaut opið sár á vör og munnholi þannig að stór u-laga skurður var yfir miðri efri vör og í gegnum alla vörina og samsvarandi fipla, 2×3 að stærð, vantaði á vörina.“

„Ekki  liggja  fyrir  í  málinu  upplýsingar  um  hvernig  tókst  til  með  að  láta  hinn afbitna flipa gróa á brotaþola, en upplýst er að brotaþoli var látinn áður en mál þetta var höfðað.“

Samkvæmt heimildum DV hófst atburðarásin þannig að föngunum Baldri Kolbeinssyni og Styrmi Haukdal Snæfeld Kristinssyni varð sundurorða. „Þeir voru að rífast um fíkniefni og síðan fóru þeir að slást. Það reyndi einn fangi að stíga inn á milli en sá fékk þung högg frá báðum aðilum. Hann er með gervigóm sem brotnaði í þrjá hluta,“ segir sjónarvottur í samtali við DV.

Að hans sögn hafði Styrmir betur í slagsmálunum og hafði barið Baldur „í spað“ þegar að blóðugum endalokunum kom. Þessu lauk með þeim hætti að Styrmir tók sér stöðu klofvega yfir Baldri og hugðist halda barsmíðunum áfram þegar Baldur reisti sig upp og beit í andlit Styrmis. Náði Baldur að bíta efri vör Styrmis og beit hana í sundur af öllu afli. Hann spýtti síðan stykkinu út úr sér á gervigrasið.

Sjá einnig: Slagsmál á Hrauninu: Ég beit af honum vörina

Trausti og Baldur eru ekki ókunnugir fangelsinu að Litla-Hrauni enda hlotið fjölmarga dóma.

Baldur hefur meira og minna setið í fangelsi frá sautján ára aldri. Hann hefur ítrekað ratað í fréttirnar fyrir átök við samfanga sína í gegnum árin. Hann hlaut 18 mánaða fangelsisdóm árið 2014 fyrir tvær líkamsárásir sem framdar voru með nokkurra mánaða millibili á útivistarsvæðinu á Litla-Hrauni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags
Fréttir
Í gær

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eru útlendingar í nánast ómögulegri stöðu á Íslandi? – „Rasismi birtist ekki alltaf í hatursfullum orðum eða ögrandi gjörðum“

Eru útlendingar í nánast ómögulegri stöðu á Íslandi? – „Rasismi birtist ekki alltaf í hatursfullum orðum eða ögrandi gjörðum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Frönsk kona grunuð um að stinga dóttur og eiginmann til bana – Farið fram á gæsluvarðhald síðdegis

Frönsk kona grunuð um að stinga dóttur og eiginmann til bana – Farið fram á gæsluvarðhald síðdegis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hrinda af stað undirskriftalista gegn þéttingu á bensínstöðvarlóð í Vesturbænum – „Björgum Birkimel“

Hrinda af stað undirskriftalista gegn þéttingu á bensínstöðvarlóð í Vesturbænum – „Björgum Birkimel“