fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Saka stjórnarflokkana um að ganga á bak orða sinna

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Afstaða hins nýja meirihluta liggur nú fyrir. Stjórnarflokkarnir nýta sér þær fordæmalausu aðstæður sem uppi eru og varða virðingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varðandi samkomulag við stjórnarandstöðuna um skiptingu formennsku í nefndum.“

Svo segir í sameiginlegri yfirlýsingu þingflokka Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins  þar sem stjórnarflokkarnir eru sagðir hafa gengið bak orða sinna með framgöngu sinni í morgun, á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, en þar vék Bergþór Ólason, Klaustursþingmaður Miðflokksins, úr formannsstóli, fyrir Jóni Gunnarssyni, Sjálfstæðisflokki.

Yfirlýsing flokkanna er sem hér segir:

„Vegna formannsskipta í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lýsum við yfir miklum vonbrigðum með að ríkisstjórnarflokkarnir VG, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, hafi stutt tillögu Miðflokksins sem lagði til brot á samkomulagi stjórnar og stjórnarandstöðu um skiptingu á formennsku í nefndum.

Fyrir umhverfis- og samgöngunefnd lágu tvær tillögur enda ljóst að fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar, auk Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur þingmanns VG og Björns Leví Gunnarssonar, áheyrnarfulltrúa Pírata, töldu óásættanlegt að fulltrúi Miðflokksins gengi að trúnaðarstörfum sínum á Alþingi sem vísum eftir framgöngu sína á Klaustri eins og alræmt er.  Krafa þeirra um formannaskipti hafði verið borin fram á síðasta fundi nefndarinnar en þá verið vísað frá af meirihlutanum. Fulltrúar minnihlutans höfðu margsinnis lagt til að Miðflokkur tilnefndi einhvern þeirra þriggja þingmanna flokksins sem ekki höfðu tekið þátt í samkomunni á Klaustri. Minnihlutinn hefur einnig ítrekað lagt til að formannsembættið færist til á næsta flokk í stjórnarandstöðunni á meðan Miðflokkurinn leysir ekki úr sínum málum og lögðu því til að fulltrúi Viðreisnar tæki við formennsku fyrir hönd minnihlutans. Fulltrúi Miðflokks kaus hins vegar að leggja til að formennska færi heldur til stjórnarliða sem meirihlutinn samþykkti.

Við formannsskiptin lágu fyrir tvær tillögur um embætti formanns, 1. varaformanns og 2. varaformanns. Fyrri tillagan var borin upp af fulltrúa Samfylkingar, Helgu Völu Helgadóttur, en sú seinni frá fulltrúa Miðflokksins, Bergþóri Ólasyni. Greidd voru atkvæði um hvert embætti fyrir sig og í öllum tilfellum greiddu fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja, að Rósu Björk Brynjólfsdóttur undanskilinni, atkvæði með tillögu Miðflokksins sem fól í sér að öll embættin færu til stjórnarflokkana þriggja.

Afstaða hins nýja meirihluta liggur nú fyrir. Stjórnarflokkarnir nýta sér þær fordæmalausu aðstæður sem uppi eru og varða virðingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varðandi samkomulag við stjórnarandstöðuna um skiptingu formennsku í nefndum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki