fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Flosi Eiríksson: „Krafa um hófstillingu virðist þó bara eiga við um verkalýðshreyfinguna“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 4. janúar 2019 09:36

Flosi Eiríksson býður sig fram til formanns VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 Flosi Eiríksson, framkvæmdarstjóri Starfsgreinasambandsins, segir í grein sinni í Fréttablaðinu í dag að umræðan um kjaramál einkennist af fullyrðingargleði, yfirlæti og sterkustu lýsingarorðum sem finnist. Nefnir hann að það væri ágætt nýársheit þeirra, sem predika hófstillingu, að taka það til sín sjálfir og undrast að hækkun lægstu launa feli í sér árás á íslenskt samfélag, líkt og orðræðan beri með sér:

„Mikil umræða er nú eðlilega um stöðuna í kjaramálum í landinu. Þar birtast sjónarmið um hvert svigrúmið sé til kjarabóta, aðkomu ríkisvaldsins, æskilegan jöfnuð og margt fleira. Eðlilega hafa hugmyndir og áherslur verkalýðshreyfingarinnar verið mikið í þeirri umræðu. Sumt af umræðunni er á kunnuglegum nótum. Eðlilegar og réttmætar hugmyndir verkalýðshreyfingarinnar eru úthrópaðar með flestum þeim sterkustu lýsingarorðum sem finnast og ýmsum finnst þeir vera þess umkomnir að setja ofan í við forystufólk launamanna af yfirlæti. Hugmyndir um að hækka lægstu launin, efla húsnæðiskerfið og bæta skattkerfið virðast fela í sér sérstaka árás á íslenskt samfélag, þeir sem mæla fyrir kjarabótum eru „ólæsir á hagfræðilögmál“ og virðast ekki skilja „hvað fólk hefur það að meðaltali gott“ og svo eru vangaveltur um að eitthvað sem viðkomandi finnst „róttækni í orðum“ geti „hæglega orðið til þess að krónan veikist enn meira“. Við þetta bætist svo sú fullyrðingagleði að forystufólkið tali ekki í umboði sinna félagsmanna þegar farið er fram á meiri jöfnuð í samfélaginu og aukinn kaupmátt þeirra sem eru á lægstu launum. Í grautinn er síðan blandað ódýrri sagnfræði um verðbólgu hér á árum áður, og að hún hafi verið almennu launafólki að kenna!“

Segir hann kröfuna um hófstillingu aðeins virðast eiga við forystu verkalýðshreyfingarinnar og gagnrýnir hann hótanir fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, um að mögulega þurfi að breyta skattkerfinu:

„Engin tilraun er gerð til að ræða málið efnislega, skilja hvernig launafólki líður og úr hvaða jarðvegi kröfurnar eru sprottnar. Allt er þó sagt undir því yfirskyni að nú sé mikilvægt að tala varlega, gæta hófs, efna ekki til ófriðar og svo framvegis og framvegis. Sú krafa um hófstillingu virðist þó bara eiga við um verkalýðshreyfinguna og talsmenn hennar, en ekki álitsgjafana sjálfa. Fjármálaráðherra taldi það svo einhverra hluta vegna hjálplegt í umræðu milli launafólks og atvinnurekenda að setja fram hálfgerðar hótanir vegna mögulegra skattkerfisbreytinga, sem sýnir undarlegt stöðumat. Það væri ágætt nýársheit þeirra sem hvað mest predika hófstillingu og málefnalega umræðu, að þeir taki það líka til sín og fjalli um hugmyndir verkalýðshreyfingarinnar og kröfur með sanngjörnum hætti?“

Þrenn félög hafa dregið samningsumboð sitt til Starfsgreinasambandsins til baka og hyggjast standa saman með VR í komandi kjaraviðræðum, en það eru Efling, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Grindavíkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð