

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton er Leicester kom í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Um var að ræða fyrsta leik ársins í ensku úrvalsdeildinni en Everton átti ekki góðan dag.
Leicester vann 0-1 sigur en það var Jamie Vardy sem skoraði eina markið í Guttagarði í Liverpool.
Gylfi Þór lék allan leikinn en Everton hefur ekki staðið sig vel í kringum jólin, liðið með þrjú stig úr fjórum leikjum.
Gylfi fær sex í einkunn fyrir frammistöðu sína.
Everton (4-2-3-1): Pickford 5: Kenny 6, Keane 5, Zouma 5, Digne 5: Gueye 6, Gomes 6 (Bernard 62mins 6): Walcott 4 (Tosun 70mins 5), Sigurdsson 6, Richarlison 5: Calvert-Lewin 5
Leicester (4-3-3): Schmeichel 6: Simpson 6, Maguire 7, Evans 7, Chilwell 7: Mendy 6, Choudhury 6, Ndidi 7: Pereira 7, Vardy 8, Ghezzal 6