fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Eyjan

Dóra Björt segir miðakaupin óheppileg: „Getur upplifast tortryggilegt“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 22. nóvember 2018 17:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir það óheppilegt að Hekla hafi keypt 200 miða af Hrólfi Jónssyni, því fólk gæti upplifað það sem tortryggilegt.

DV greindi frá því í morgun að Hrólfur, sem þá var skrifstofustjóri eigna og atvinnuþróunar, hafi skrifað undir viljayfirlýsingu á milli Reykjavíkurborgar og Heklu um uppbyggingu á lóð Heklu við Laugarveg í skiptum fyrir lóð í Suður Mjódd. Því skal haldið til haga að lóðinni hefur ekki verið úthlutað og eru samningaviðræður í hnút, talað er þó um Heklureitinn í bæklingi borgarinnar um uppbyggingu íbúða og sagt að þar séu 400 íbúðir í skipulagsferli. Hér má sjá kort Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Reykjavík. Í október síðastliðnum hélt Hrólfur tónleika í Hörpu og keypti Hekla 200 miða á tónleikana. Hjördís María Ólafsdóttir, markaðsstjóri Heklu sagði í samtali við DV að hún hefði ekki upplýsingar um hver hefði tekið þá ákvörðun að kaupa miðana.

Sjá einnig: Hrólfur vildi láta Heklu fá lóð án útboðs – Síðan keypti Hekla miða á tónleika Hrólfs að verðmæti 1,6 milljón króna

Ekki hefur náðst í Friðbert Friðbertsson, forstjóra Heklu, vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hrólfur var ekki sáttur við spurningar DV um málið og sagði þetta ekki koma blaðamanni við.

Dóra Björt tjáir sig um málið í hópnum Píratar í Reykjavík og segir:

„Persónulega þykir mér þó mjög óheppilegt að þessi fyrrverandi starfsmaður hafi selt svo marga miða til Heklu því það getur upplifast tortryggilegt.“

Sævar Óli Helgason, fyrrverandi fulltrúi Pírata í Faxaflóanefnd, talar um glæp í athugasemd. Því svaraði Dóra: „Hvaða glæpur var hér framinn? Það er verið að fá Heklu í burtu úr miðbænum til að byggja upp nýtt svæði byggt á metnaðarfullu skipulagi – því þarf að koma Heklu fyrir annarsstaðar, það er ekkert óeðlilegt við það. En samningum er ekki lokið og engri lóð hefur verið úthlutað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum