

Heiðveig María Einarsdóttir segist orðlaus yfir sérkennilegri greinargerð sem félagsmenn í Sjómannafélagi Reykjavíkur skrifuðu með það að markmiði að láta reka hana úr félaginu. Í viðtali í hlaðvarpsþættinum Stóru málin fer Heiðveig yfir málið og rekur það hvernig hún hugðist gefa kost á sér í trúnaðarstörf fyrir félagið sem endaði á því að hún var rekin úr því og sökuð um að grafa undan hagsmunum þess.
Það sem virðist hafa sett af stað þessa hugmynd Sjómannafélags Íslands um yfirtöku á félaginu væri yfirvofandi, samkvæmt greinagerð sem var gerð þar innanhús, er símtal Gunnars Smára Egilssonar á skrifstofu félagsins.
Aðspurð hvort hún sé í tygjum við sósíalistaflokkinn, eins og virðist vera hryggjarstykkið í gagnrýninni gegn henni í greinargerðinni, segir hún slíkt af og frá. Hún hafi hinsvegar verið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir rúmum áratug síðan.
Þáttastjórnendur Stóru málanna eru:
Valur Grettisson, ritstjóri Grapevine
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, blaðamaður á DV
Björn Þorfinnsson, fréttastjóri DV
Hægt er að hlusta á viðtalið við Heiðveigu Maríu í hlaðvarpi Stóru málanna, sem verður aðgengilegt á vef DV vikulega héðan í frá hér að neðan.