Lögreglan á Suðurlandi hefur birt nöfn fólksins sem lést í bruna á Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær.
Konan sem lést í brunanum hét Kristrún Sæbjörnsdóttir. Hún var fædd 1. október 1971 og var hún búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjá syni. Kristrún var gestkomandi í húsinu.
Karlmaður sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson. Hann var fæddur 29. nóvember 1969 og búsettur á Selfossi. Guðmundur var ókvæntur og barnlaus. Hann var einnig gestkomandi í húsinu.
Í tilkynningu kemur fram að aðstandendur færi viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.