fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Fókus

Ragga nagli: „Lífið er núna, ekki eftir einhver kíló“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 1. nóvember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Í þessum fjallar hún um að gæfuspor lífshamingjunnar.

EKKI HÆTTA.

HALTU ÁFRAM.

Við sjáum svona pósta í hástöfum eins og gargað á okkur daglega á gramminu og Fésbók.
Iðulega fylgir mynd af brúnkusprautuðum tálguðum skrokk og æðakerfið sýnilegt hinu nakta auga eins og leiðakerfi strætisvagnanna.

Þessum skilaboðum er ætlað að rífa botnstykkið upp úr sófasettinu, og klöngrast á hlaupabrettið og skipta fjarstýringunni út fyrir galvaníserað handlóð. Svo lengi sem þú gefst ekki upp muntu uppskera draumaskrokkinn að lokum.

En það er samt ýmislegt sem er okkur hollt að gefast upp á að gera og mun aðeins auðga lífið, fylla það hamingju og minnka kvíða.

Margt sem við hættum að gera veitir okkur sjálfstraust, hugarró og frelsi.

Hlutir sem þú ættir að gefast upp á að gera.

* Að hlammast á vigtina daglega eða mörgum sinnum á dag og leyfa tilviljanakenndri tölu sem poppar á skjáinn að ákvarða lífshamingju dagsins.

* Að fresta því að kaupa föt þar til þú grennist og senda þar með skilaboð til sjálfsins um að vera ekki nógu góð eins og þú ert nú þegar.

* Henda heilu fæðuflokkunum út í hafsauga eftir að hafa lesið í lífsstílstímariti reynslusögu um stórkostlega hratt þyngdartap Gunnu úti í bæ.

* Logga hverja örðu af mat í smáforrit í símanum og láta töluna þar stjórna hversu mikið og hvað rennur niður vélindað þann daginn.

* Að fara á æfingu til að refsa þér fyrir að hafa löðrað þig í bernessósu um helgina.

* Að horfa á matardiskinn sem grömm af kolvetnum, prótíni og fitu, en ekki sem ánægjulega upplifun í munninum.

* Borða mat sem þér finnst ekki góður af þeirri einu ástæðu að hann er á matarplani sem þú niðurhalaðir af netinu.

* Stunda kerfisbundið niðurrif á spegilmyndinni á hverjum morgni með ljótri orðræðu um skrokkinn.

* Að láta fatastærð eða þyngd ákvarða virði þitt sem manneskju en ekki styrkleika og eiginleika þína sem manneskju og áhrif á annað fók.

Því er barið inn í hausinn á okkur að gefast aldrei upp en stundum getur það verið okkar helsta gæfuspor fyrir lífshamingjuna að gefa sumt upp á bátinn.

Lífið er núna… ekki eftir einhver kíló.

Facebooksíða Röggu nagla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 23 klukkutímum

Anton opnar sig um föðurmissinn – „Hann kunni ekki að biðja um hjálp“ 

Anton opnar sig um föðurmissinn – „Hann kunni ekki að biðja um hjálp“ 
Fókus
Í gær

Einar og Baldur með nýtt hlaðvarp fyrir miðaldra karla: „Oftast heyrum við af þessum málum þegar allt er komið í óefni“

Einar og Baldur með nýtt hlaðvarp fyrir miðaldra karla: „Oftast heyrum við af þessum málum þegar allt er komið í óefni“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Áslaug hlýtur Íslensku þýðingarverðlaunin 2026

Áslaug hlýtur Íslensku þýðingarverðlaunin 2026
Fókus
Fyrir 3 dögum

Af hverju eru Norðmenn svona góðir í vetraríþróttum?

Af hverju eru Norðmenn svona góðir í vetraríþróttum?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stebbi fagnar stórafmæli með söngveislu

Stebbi fagnar stórafmæli með söngveislu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan útskýrir hvernig hún afskræmdist í framan – „Það er glatað að eldast um 20 ár á einu bretti“

Raunveruleikastjarnan útskýrir hvernig hún afskræmdist í framan – „Það er glatað að eldast um 20 ár á einu bretti“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dánarorsök dótturinnar opinberuð

Dánarorsök dótturinnar opinberuð