

Rétt fyrir klukkan fjögur nú síðdegis var tilkynnt um eld í einbýlishúsi á Selfossi. Slökkvistarf stendur enn yfir en mikill eldur var í húsinu og ekki unnt fyrir slökkvilið að komast inn vegna gríðarlegs hita. Húsráðandi og gestkomandi kona eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á eldsupptökum.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi sem barst fyrr í kvöld segir:
„Ennþá er unnið að slökkvistarfi í einbýlishúsi við Kirkjuveg á Selfossi en tilkynning um eld í húsinu barst lögreglu skömmu fyrir kl. 16:00 í dag.“
Húsið er gamalt, hæð og ris og einangrað með frauðplasti að hluta. Þá segir:
„Talið er að karlmaður og kona sem voru á efri hæðinni þegar eldurinn kom upp hafi látist í brunanum.“
DV ræddi við Odd Árnason yfirlögregluþjón sem enn er á vettvangi. Hann vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, þar sem það er enn á rannsóknarstigi og vísaði á yfirlýsingu frá embættinu.
Þar kemur enn fremur fram:
Ekki er unnt að staðreyna það með óyggjandi hætti fyrr en slökkvistarfi er lokið, húsið kólnað og vettvangur hefur verið tryggður vegna hrunhættu og mun vinna við það að líkindum hefjast í fyrramálið.
Aðstandendum þeirra sem saknað er hefur verið kynnt staða málsins.
„Tveir einstaklingar sem handteknir voru á vettvangi í þágu rannsóknar málsins eru í haldi lögreglu. Ekki hefur verið unnt að taka skýrslu af þeim vegna ástands þeirra. Eldsupptök eru ókunn.“