Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, 31. október, samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.
Þar segir að köfnunarefnisdíoxíðmengun komi frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.
„Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. Búast má við svipuðum veðuraðstæðum næstu daga. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.“
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á http://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik.