Sjónvarpsmaðurinn og sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), hafa verið að hittast. Nokkrar vikur eru síðan turtildúfurnar fóru að rugla saman reytum og hafa þau sést saman opinberlega við þónokkur tilefni. Hjörvar hefur lengi verið einn eftirsóttasti piparsveinn landsins en hann er einn umsjónarmanna Brennslunnar á FM957. Heiðrún tók nýverið við framkvæmdastjórastarfi SFS en hún starfaði lengi á LEX lögmannsstofu.