Tamra Judge, ein af stjörnunum úr raunveruleikaþáttunum The Real Housewives of Orange County greindist með sortuæxli eftir að hafa verið hvött af íslenskum nuddara að fara í blettaskoðun. Hluti þáttaraðarinnar var tekinn upp á Íslandi seinasta sumar.
Í samtali við The Daily Dish segist Tamra hafa verið með fæðingarblett á rasskinninni en aldrei veitt blettinum neina sérstaka athygli. Þegar hún dvaldi á Íslandi sumarið 2017 fór hún til nuddara. Sú sem nuddaði hana tók eftir blettinum og benti henni á að það væri vissara fyrir hana að láta lækni skoða blettinn nánar.
Tamra segist í fyrstu ekki hafa tekið mark á þessum varnaðarorðum en nokkrum mánuðum síðar þurfti hún að leita til húðsjúkdómalæknis út af öðru vandamáli. Ákvað hún í lok tímans að sýna lækninum blettinn og spyrja hann álits. Bletturinn var í kjölfarið sendur í ræktun.
„Síðan var hringt í mig þar sem ég sat í bílnum og sagt við mig: „Þú ert með sortuæxli“ og ég sagði bara: „Ó, guð.“ Ég átti alls ekki von á þessu,“ segir hún og bætir við að blessunarlega hafi meinið verið á byrjunarstigi og því verið auðvelt að meðhöndla það. Hún er nú undir ströngu eftirliti og fer í skoðun hjá húðsjúkdómalækni á þriggja mánaðafresti.
Hún kveðst vera mun meðvitaðri um heilsuna nú en áður og gætir þess að mæta reglulega í eftirlit. Þegar hún var yngri lá hún í sólbaði klukkutímum saman og bar aðeins barnaolíu á húðina en enga sólarvörn. Þetta var á níunda og tíunda áratug seinustu aldar og kveðst Tamra verða vör við vitundarvakningu um húðkrabbamein á meðal fólks af hennar kynslóð.
„En ef hún hefði ekki neitt sagt við mig [Á Íslandi] þá hefði líklega aldrei látið athuga blettinn nánar.“