fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Arnbjörg með tárin í augunum eftir ótrúlega tilviljun: „Já, þetta er hann“ Hún byrjaði að tárast og dóttir hennar líka“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 9. október 2016 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mig langar að segja ykkur smá sögu, ótrúlega sögu en hún sannar hvað heimurinn er lítill. Ég er með gæsahúð og svei mér þá ef mér vöknar ekki örlítið um augu,“ segir Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikkona í stuttum pistli á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. Hún tók að sér fyrir skemmstu að fara með hóp í norðurljósaferð.

Rútan stoppaði í Borgarnesi og þar var stoppað til að borða. Arnbjörg segir frá því að hún hafi staðið fyrir framan stórt kort af Íslandi og útskýrt hvar á landinu þau væru. Hún benti á Kötlu og svaraði spurningum um land og þjóð. Þá benti ein kona á Grímsey og sagði Arnbjörgu frá því að fyrir 29 árum tók hún þá ákvörðun að yfirgefa heimalandið, fara frá öllu og fara til Grímseyjar að vinna í fiski.

„Kona, svona kannski um fimmtugt – hlý og falleg. Við tölum um Grímsey, Akureyri, Öxnadalinn – hún segir mér síðan með mikilli hlýju að yfirmaður fyrirtækisins sem hún vann fyrir hafi keyrt til Keflavíkur til að sækja hana og vinkonu hennar á flugvöllinn, keyrt með þær norður ásamt ungri dóttur hans, boðið þeim heim í mat til fjölskyldunnar og svo komið þeim upp í flugvél sem kom þeim út í Grímsey.“

Arnbjörg spurði hana út í yfirmanninn, var forvitinn hvort þetta væri einhver sem hún þekkti en erlenda konan mundi ekki nafnið. Hún mundi þó að hann hefði starfað fyrir KEA.

„Eitthvað fór að klingja bjöllum hjá mér því pabbi átti það til að taka mig með suður þegar hann fór að sækja fólk til Keflavíkur. Ég sagði henni að þetta væri ótrúleg tilviljun því pabbi hefði verið kaupfélagsstjóri KEA og við áttum engin orð. Ég var að hugsa um 70 manns að auki svo ég hélt áfram að vinna, en þegar ég kom aftur í rútuna spurði hún mig hvort ég væri með mynd af pabba. Ég sagðist athuga málið og áfram hélt ferðin.“

Hópurinn sá engin norðurljós þessa nótt og aftur var haldið til Reykjavíkur í storminum. Arnbjörg fann svo mynd af föður sínum í símanum og sýndi konunni og það stóð heima:

„Já, þetta er hann“ Hún byrjaði að tárast og dóttir hennar líka og faðmaði mig þéttingsfast. Ég varð að setjast og halda áfram að segja fólkinu frá og koma því heim á hótel.“

Arnbjörg segir að lokum um þessa tilviljun:

„Hún var síðust út, rétti mér miða með nafninu sínu, við föðmuðumst og hlógum og áttuðum okkur á að ég var litla stelpan sem hafði tekið á móti henni í Keflavík með pabba fyrir 29 árum síðan. Ég hlakka til að vita meira og sofna með bros á vör. Er ekki heimurinn fallegur?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður
Fókus
Fyrir 1 viku

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“