fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ragga Nagli spyr hvort þú þekkir Jáen?

„Jáen heldur áfram að brjóta þig niður“

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 21. september 2016 20:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þekkir þú Jáen?“ Á þessum orðum hefst pistill eftir Ragnhildi Þórðardóttir, heilsusálfræðingur og fjarþjálfari, einnig þekkt undir nafninu Ragga nagli.

Ragga hefur vakið athygli fyrir beinskipta pistla sína er tengjast öllum kimum samfélagsins. Í pistlinum sem birtist hér að neðan ræðir hún um líkamsímynd og mikilvægi þess að hrósa sjálfum sér. Í pistlinum sem birtist á Facebook síður Röggu Nagla segir orðrétt:

„Þekkir þú Jáen?

Jáen er ekki færeyskur kokkur frá Þórshöfn. Jáen er sá sem kemur í heimsókn þegar þér er hrósað.

Vá hvað þú hleypur hratt.
Já en þetta voru nú ekki nema 100 metrar.

Smart peysa sem þú ert í.
Já en æi hún er eldgömul.

Flott á þér hárið. Varstu í klippingu.
Já en ég er ekkert ánægð með þessa greiðslu.

Mikið líturðu vel út í dag.
Já en ég þurfti alveg að sparsla í hrukkurnar í morgun

Jáen er frændi Nonna neikvæða.

Eins og dyravörður á Ingólfscafé passar hann uppá að hrós og jákvæðar staðhæfingar séu ekki teknar trúanlegar.

Jáen viðheldur trúnni að þú sért ekki nóg með að afskrifa hól eins og neyslulánin frá 2007.

Jáen heldur áfram að brjóta þig niður með að viðkomandi sé bara að sjá aumur á þér af því þú ert ekki nóg.
Þetta er bara þvættingur. Skýrðu þetta burt.

Við erum búin að hafa það svo gott saman þar sem ég ríf sjálfið þitt niður eins og gamlan Icesave samning
Jáen vill alls ekki að þú segir „Takk fyrir kærlega. Þetta styrkti mig“ þegar þér er hrósað.

Jáen vill viðhalda skruðningunum sem suða í hausnum um að þú sért ekki nóg. Eigir ekki nóg. Gerir ekki nóg.
Ekki nógu ríkur, sterkur, stæltur, grannur, stór, lítill. Ekki nógu góð móðir, dóttir, sonur, systir.

Og þess vegna ætlum við ekki að taka hrósi trúanlega

Þá ferðu að vera sátt við sjálfa þig og færð sjálfstraust.
Það vill Jáen ekki.

Næst þegar þér er hrósað hentu Jáen öfugum útúr partýinu.
Hann eyðileggur stuðið.

Hann er boðflenna og dóni.

Ræfill og rukkari.

Þakkaðu fyrir.

Taktu það til þín

Trúðu því.

Notaðu það síðan til að styrkja þig í þínum góðu venjum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís