Teiknarinn Heiðdís Helgadóttir teiknar einföld mynstur með penna á blað meðan hún horfir á þætti á Netflix. Úr verða einföld og falleg listaverk sem fylla verslun Heiðdísar í Hafnarfirði. Heiðdís er hvað þekktust fyrir uglulistaverkin sem slógu óvart en rækilega í gegn hér á landi fyrir tveimur árum.
Heiðdís Helgadóttir er Hafnfirðingur í húð og hár. Hún ólst upp í bænum fagra við fjörðinn og er búsett þar ásamt manni og tveimur börnum. Bærinn skiptir hana miklu máli og hefur hún meðal annars starfað með markaðsstofu Hafnarfjarðar að átaksverkefni sem ætlað er að laða að innlenda ferðamenn. Verslun hennar, Heiðdís Helgadóttir art prints, er liður í því verkefni en þar hefur hún stúdíó og lager auk þess sem gestum og gangandi býðst að kaupa teikningarnar hennar.
„Ég útskrifaðist úr arkitektúr frá Listaháskólanum árið 2012 en hef síðan starfað við að teikna myndir. Starf mitt er gríðarlega fjölbreytt því ég teikna bæði eigin teikningar og tek að mér alls konar verkefni, til dæmis teikningar í barnabók, á plötualbúm og önnur grafíktengd verk fyrir einstaklinga og fyrirtæki.“
En hvað með arkitektúrinn? Hefur þú lagt hann á hilluna eða stefnir þú aftur í þann bransa?
„Mér finnst ég ekkert óskaplega góð í því og það helst sennilega í hendur við áhugaleysið. Í arkitektúr eru verkefnin tímafrek og stór og krefjast mikils úthalds. Ég kýs frekar smærri og fjölbreyttari verkefni. Mér finnst ótrúlegt hvað internetið býður upp á mörg tækifæri en mér hefur til dæmis boðist ótrúleg verkefni í gegnum „hashtögg“ (myllumerki) á Instagram. Ég gerði til að mynda grafík á snjóbretti hjá Níkita og verkefni fyrir brimbrettaverslun í Bandaríkjunum vegna þess að þessir aðilar fylgdu mér á samfélagsmiðlum.“
Það stafar mikilli orku frá Heiðdísi og ljóst að hún lætur ekkert stoppa sig þegar kemur að því að framkvæma og láta drauma sína rætast. En hvert sækir hún innblástur?
„Ég nýt þess að vinna og verð að hafa nóg fyrir stafni. Ég hef unnið alls konar vinnu og finnst allt jafn skemmtilegt ef það er nóg um að vera. Stundum er ég með mörg járn í eldinum en þannig virka ég líka best. Ég hef reynt að teikna og skapa eitthvað við rólegheit og fuglasöng í sumarbústað en það virkar ekki hjá mér. Helst þarf ég að vera að horfa á sjónvarpið, þætti á Netflix, hlusta á tónlist og hafa fullt af áreiti í gangi. Þá gerast hlutirnir og eitthvað verður til!“
Verslunarrekstur, ýmis samstarfsverkefni, myndlist og vöruþróun eru ólíkir fletir og geta vafalaust verið í senn skemmtileg og erfið verkefni en hvað er skemmtilegast að mati Heiðdísar?
„Barnabókateikningin kom mér gríðarlega á óvart og hvað ég átti auðvelt með það. Ég hallast alltaf meira að því að vinna með börnum enda eru þau svo einlæg í skoðunum sem einfaldar svo margt. Um þessar mundir er ég að vinna að myndskreytingu fyrir bókina hennar Hönnu Borgar Jónsdóttur lögfræðings. Bókin heitir Rúnar góði og fjallar um einn dag í lífi drengs þar sem flestir sáttmálarnir koma við sögu. Mjög áhugaverð lesning fyrir bæði börn og fullorðna. Það er svo mitt að láta textann höfða vel til barna í gegnum teikningarnar.“
Heiðdís þarf að hugsa sig verulega um til þess að finna eitthvað leiðinlegt eða erfitt við vinnu sína.
„Mér finnst ekkert erfitt!“ Hún andvarpar en heldur svo áfram: „Viðskiptahliðin á öllu sem ég geri er leiðinleg. Ekki erfið, heldur leiðinleg! Á tímabili fannst mér ég bara vera að sinna innheimtu og á fundum að semja um verð. Það er einfaldlega ekki skemmtilegt og þess vegna hef ég oft unnið verkefni ókeypis, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki nennt að standa í þessu.“
Það hefur nú margur listamaðurinn kvartað undan skorti á viðskiptaviti en margir óskað þess að þeim gangi jafn vel og raunin hefur verið hjá Heiðdísi. Berst þá talið að uglumyndunum frægu.
„Já, ugluteikningarnar komu af stað því sem ég hef byggt upp í dag. Það er stórfurðulegt enda sat ég bara heima um kvöld og ætlaði að gera gjöf handa vinum. Ég teiknaði eina uglu og úr varð bara algjört „hitt“! Margir hvöttu mig til þess að hamra járnið á meðan það væri heitt. Prenta uglur á boli og bolla og mjólka það sem hægt væri út úr þessum vinsældum. En ég var ekki tilbúinn til þess og hef ekki teiknað uglu í næstum því tvö ár. En ég geri það örugglega einhvern daginn.“
Heiðdís stefnir á að taka sér smá frí á næstu vikum til þess að hreinsa hugann en hún telur það nauðsynlegt svo hún komi fersk inn með nýjar vörur í búðir fyrir jólin. Hægt er að fylgjast með Heiðdísi og vörum hennar á Instagram undir nafninu Heiddddddinstagram.