

Íslenska landsliðið féll úr leik á Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu þegar það tapaði á afar ósanngjarnan hátt fyrir Króatíu. Við áttum möguleika fram á síðustu mínútu að komast í 16 liða úrslit. Strákarnir okkar gáfu allt í leikinn en því miður vildi boltinn ekki inn og Króatar stálu sigrinum í lokin.
Það er ekki annað hægt en að vera stoltur af liðinu okkar og Facebook er undirlagt af baráttukveðjum til drengjanna sem nældu sér í stig gegn Argentínu og skoruðu tvö mörk á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti. Þeir hafa sýnt næstu kynslóðum að þetta er hægt. Hér fyrir neðan má sjá nokkur innlegg af Facebook og við spilum að sjálfsögðu lagið Ég er kominn heim sem sungið var af áhorfendum í Frakklandi. Við gætum birt ótal innlegg en við höfum valið nokkur af handahófi sem ættu að lýsa hvernig þjóðinni líður núna. Við erum óendanlega stolt.
Áfram Ísland! Takk fyrir okkur! Takk fyrir drauminn. Takk fyrir að skemmta okkur!
Takk strákar. Getið borið höfuðið hátt og búnir að setja mælistiku framtíðarlandsliða. Verð að viðurkenna frammistaða Emils Hallfreðssonar í 2 leikjum var stórkostleg. En takk fyrir mig.
Umsókn til mannanafnanefndar.
Óska eftir að nafni verði breytt í: Katrín Hannes Frederik Rúnar Ari Birkir Hólmar Hörður Ragnar Kári Samúel Sverrir Arnór Aron Birkir Emil Gylfi Jóhann Ólafur Rúrik Albert Alfreð Björn Jón Heimir Helgi Júlíusdóttir.
Með fyrirfram þökk til ykkar um leið og við skulum öll þakka þessu snilldarlandsliði – við erum þeir og þeir eru við!!
Það er stórkostlegt að hafa átt möguleika á að komast í 16. liða úrslit á HM fram á 90. mínútu í lokaleik riðlakeppninnar. Takk fyrir mig. Nú hlakka ég til að sjá Belga lyfta bikarnum í lokin!