fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Fjölmiðlakonur á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni neita að skrifa undir yfirlýsinguna vegna máls Hjartar

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. júní 2018 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjötíu og fimm fjölmiðlakonur hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna hegðunar Hjartar Hjartarsonar á HM í Rússlandi. Íslenskar fjölmiðlakonur sendu frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem þær kröfðust þess að Hjörtur myndi ekki starfa lengur innan stéttarinnar. Þær segja að yfirmenn fjölmiðla Íslands verði að tryggja öryggi starfsmanna sinna en Hjörtur hafi endurtekið orðið uppvís að því að ógna og veitast að samstarfsfólki. Þær segja í yfirlýsingunni að það sé ólíðandi að Hjörtur fá enn eitt tækifæri þó hann hætti að drekka. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér.

Það vekur athygli að fjölmiðlakonur á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni sem er í eigu Sýnar þar sem  Hjörtur starfar, neita að skrifa undir yfirlýsinguna og hafa sent frá sér nafnlausa yfirlýsingu. Þar segir að hegðun Hjartar sé fordæmd en vilja samt sem áður ekki leggja nafn sitt við yfirlýsinguna sem 75 konur hafa sent frá sér. Í yfirlýsingu fjölmiðlakvenna á Sýn segir:

„Við fordæmum hegðun Hjartar á Heimsmeistaramótinu. Allir eiga að geta sinnt starfi sínu óáreittir, hvort sem það er í vinnuferð eða á vinnustað og að sjálfsögðu er annað óásættanlegt.

Við höfum fengið staðfest frá yfirmönnum okkar að málið er í formlegu ferli og litið alvarlegum augum. Við viljum að málið sé afgreitt og niðurstaða fáist áður en við tjáum okkur opinberlega. Þess vegna munum við ekki skrifa undir opinbera yfirlýsingu að svo stöddu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“