fbpx
Laugardagur 21.mars 2026

Karl í kvennafans

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 3. júní 2018 10:00

Tobba og Karl ásamt dótturinni Regínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Tobba Marinósdóttir tilkynnti í apríl síðastliðnum í beinni útsendingu á K100 að hún ætti von á öðru barni með unnustanum Karli Sigurðssyni Baggalút. Fyrir eiga þau dótturina Regínu, sem verður fjögurra ára í júlí.

Og nú er orðið ljóst að Karl verður í minnihluta á heimilinu því von er á stúlkubarni.

Tobba gaf nýlega út bókina Gleðilega fæðingu, sem hún skrifaði í samstarfi við Hildi Harðardóttur fæðingarlækni og Aðalbjörn Þorsteinsson, gjörgæslu og svæfingalækni. Í bókinni er farið yfir það allra helsta sem þarf að hafa í huga þegar farið er á fæðingardeildina og er hún hugsuð sem uppflettirit fyrir verðandi foreldra. Það er því ljóst að parið ætti að vera vel í stakk búið þegar kemur að fæðingu dótturinnar, en Tobba sagði að hvatinn að bókinni hafi verið sá að henni fannst skorta upplýsingar þegar hún fæddi Regínu. „Ég hafði aldrei komið inn á fæðingardeild og í dag er ekki lengur hægt að fá að skoða þær svo óvissan um hina ýmsu þætti var mikil hjá mér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þarf að dúsa áfram í fangaklefa eftir að hafa buffað mann á golfvelli – „Þú hefðir átt að haga þér betur“

Þarf að dúsa áfram í fangaklefa eftir að hafa buffað mann á golfvelli – „Þú hefðir átt að haga þér betur“
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum
Chuck Norris er látinn
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“