„Fyrir rúmri viku kom Birna Brjánsdóttir ekki heim. Síðan hefur hennar verið leitað. Lögreglan hefur unnið þrotlaust að rannsókn málsins, með aðstoð landhelgisgæslu og björgunarsveita. Með þakklæti höfum við fylgst með störfum þeirra. Þau hafa verið vönduð og yfirveguð, sem og samskipti þeirra við almenning og fjölmiðla.“
Þetta segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í yfirlýsingu sem hann hefur birt á fésbókarsíðu sinni.
„Margir hafa lagt leitinni lið og veitt upplýsingar. Þetta sorglega mál hefur snert þjóðina, hreyft við okkur öllum og saman höfum við vonað að það fengi ekki þennan endi. En nú er Birna fundin og við sameinumst í sorginni,“ bætir hann við.
„Ég votta fjölskyldu og ástvinum Birnu samúð mína,“ segir forsætisráðherra ennfremur.