„Í dag leita hundruð manna að Birnu Brjánsdóttur sem nú hefur verið saknað í viku. Hugur okkar allra má vera með fjölskyldu Birnu og vinum, björgunarsveitarfólkinu okkar og öllum sem hafa unnið að rannsókn málsins,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands.
Hann fjallar á fésbókarsíðu sinni um mál málanna, hið óhugnanlega hvarf Birnu Brjánsdóttir, tvítugrar stúlku, um síðustu helgi. Íslenska þjóðin hefur verið miður sín undanfarna daga og hvert sem farið er, er þetta eina umræðuefnið manna á milli.
„Samhugur, stilling og vilji til að láta gott af sér leiða skiptir mestu. Vörumst allt sem gæti sært þá sem síst skyldi eða alið á tortryggni og fordómum. Stöndum áfram saman, Íslendingar, sýnum styrk, von og samkennd,“ segir forseti Íslands ennfremur.