fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Á RÚV var hvatt til sniðgöngu á vörum frá Kína

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 2. janúar 2017 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV
Mynd/DV

„Kínverjar brenna kolum til að framleiða vörur og allar vörur sem eru framleiddar í Kína eru því óumhverfisvænar,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem tók uppá því að nota veðurfréttatíma RÚV í gærkvöldi til þess að hvetja Íslendinga til að sniðganga vörur frá Kína.

Fyrst sýndi hann á korti línurit sem sýndi hvað meðalhiti á jörðinni hefði aukist mikið frá því að mælingar hófust árið 1850 og fullyrti síðan að svo væri aðallega af mannavöldum.

Blaðamennirnir Freyr Gígja Gunnarsson og Jóhann Bjarni Kolbeinsson fylgja þessu eftir á vef Ruv.is í dag og setja ummæli hans í samhengi. Freyr Gígja bendir á Rannsókn, sem vísindamenn við Maryland og Harvard háskóla gerðu og kynnt var í september, sýndi fram á að vara sem væri framleidd í Kína mengaði mun meira en sambærileg vara frá öðru landi. Hin mikla kolanotkun Kínverja væri ástæðan.

Þá bendir Freyr Gígja á að til dæmis hafi verið hálfgert neyðarástand í Peking um miðjan desember vegna mikillar loftmengunar. Mengunin í borginni hefði mælst átta sinnum meiri en hættumörk.

Í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun sagði Einar Sveinbjörnsson:

Þetta er um það bil 70-75% af allri þeirra orkuframleiðslu til raforkuframleiðslu. Hún er fengin með brennslu á kolum. Og þeir eru svo stórtækir í þessu að þeirra svakalegu kolanámur duga ekki einu sinni, heldur flytja þeir líka inn kol, meðal annars frá Ástralíu. Þeir eru að brenna tíu milljónum tonna á dag af kolum. Til að setja þá tölu í samhengi eru árlegar fiskveiðar alls okkar fiskiskipaflota 1-2 milljónir tonna á ári.

Ef þetta er rétt hjá Einari þá eru Kínverjar að brenna 3,65 milljörðum tonna á hverju ári á meðan fiskiskipaflotinn íslenski brennir 1-2 milljónum tonna.

Á fésbókinni sinni skrifar Gunnlaugur Jónsson, fjárfestir, eftirfarandi um uppátæki veðurfræðingsins:

Þetta eru kannski eðlileg viðbrögð fyrst þegar menn uppgötva að milljarðar manna hafi komist úr sárustu fátækt með hjálp kolaorku. En auðvitað vill fólkið sem andar að sér kolarykinu enn frekar en við breyta þessu. Þegar sú staðreynd rennur upp fyrir manni dettur manni ef til vill eitthvað uppbyggilegra í hug en að ráðast gegn lifibrauði þess. Maður getur t.d. unnið í hreinni orkugjöfum, þ.m.t. olíu og gasi.

Hér má lesa frétt Jóhanns Bjarna og hér má lesa frétt Freys Gígju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins