fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Eyjan

Styrkur ríkis og þjóðfélags er ekki metinn eftir hagvexti eða þjóðarframleiðslu

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 1. janúar 2017 14:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni á blaðamannafundinum á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Rúm sjötíu ár eru liðin síðan lýðveldi var stofnað á Íslandi og þjóðhöfðingi kjörinn. Þá var lagður sá grunnur sem hefur staðist tímans tönn: Forseti Íslands á að vera fulltrúi og málsvari allra Íslendinga, allra sem búa á þessu landi. Enginn er stærri en embættið sjálft. Hver forseti hefur þó mótað embættið með sínum hætti, innan ramma laga, hefðar og tíðaranda, sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í sínu fyrsta nýársávarpi í dag.

Forsetinn sló að ýmsu leyti nýjan tón í ávarpi sínu, vitnaði í nútímalistamann á borð við Helga Björnsson og Braga Valdimar Skúlason og sagði á persónulegum nótum frá veikindum náins vinar síns úr menntaskóla, sem minntu á að brugðið gæti skjótt til beggja vona í lífinu.

Þá sagði hann frá nýjungum varðandi heimasíðu forsetaembættisins og tilkynnti að síðar á þessu ári muni landsmönnum jafnframt gefast kostur á að heimsækja Bessastaði án þess að hafa beinlínis fengið um það boð.

„Á síðunni nýju mun fólk geta skráð sig í kynnisferð um þjóðhöfðingjasetrið til að fræðast um þennan merka stað í sögu okkar og samtíð,“ sagði hann.

Forsetinn sagði flesta Íslendinga einhuga um þær meginstoðir íslensks samfélags að allir ættu jafnan rétt til grunnmenntunar og lækninga, óháð efnahag. Sátt virðist einnig ríkja um nauðsyn þess að heilbrigðis- og menntakerfi landsins standi undir nafni.

„Sé þannig að verki staðið er minni hætta en ella á því að fólk festist í fátækt og forlagafjötrum. Um leið eiga allir að geta spreytt sig, skarað fram úr, efnast, gert vel við sig og sína en goldið sanngjarnan skerf til samfélagsþarfa. Höfum þó í huga að aukin misskipting veldur sundrungu og spennu. Mannkyni mun aldrei farnast vel ef eitt prósent jarðarbúa á eins mikinn auð og hin 99 prósentin til samans,“ sagði hann.

„Það er nefnilega þannig að styrkur ríkis og þjóðfélags er ekki metinn eftir hagvexti eða þjóðarframleiðslu, vígbúnaði eða mannfjölda. Og þótt við fögnum afrekum samlanda okkar á sviði menningar, vísinda eða íþrótta eru þau ekki endilega til vitnis um kosti samfélagsins. Raunverulegur styrkur þess felst í því hversu vel er hlúð að sjúkum og öðrum sem þurfa á aðstoð að halda, fólki sem býr við fötlun eða þroskaskerðingu. Styrk samfélags má líka meta eftir því hvernig börnum er sinnt, hvernig búið er að öldruðum á ævikvöldi. Þetta eru allt saman mælikvarðar á lífsgæði, markmið sem skipta mestu í bráð og lengd. Í samanburði við mörg önnur ríki og okkar eigin fortíð megum við vel við una. En við getum ætíð gert enn betur,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson ennfremur í sínu fyrsta áramótaávarpi sem forseti Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum