fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Segja Ísland geta tekið við fleiri flóttamönnum – „Við þurfum sannarlega á þeim að halda“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 29. maí 2017 17:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Rauði krossinn

Félagasráðgjafar sveitarfélaga segja fordóma ríkjandi víða hér á landi neikvæð viðhorf gangvart innflytjendum en þeir séu nauðsynlegir íslenski samfélagi. Í dag fer fram Evrópuráðstefna félagsráðgjafa í Hörpunni undir yfirskriftinni Jaðarsetning í síbreytilegu samfélagi. Helstu viðfangsefni ráðstefnunnar að þessu sinni málefni innflytjenda og flóttafólks. Á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun var rætt við Eddu Ólafsdóttur félagsráðgjafa á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og Sólveigu Sveinbjörnsdóttur sem starfar hjá sveitarfélaginu Árborg af þessu tilefni.

Í samtali við Óðinn Jónsson segir Edda að rætt sé um að þörf sé á allt að því 7 þúsund manns til starfa hér á landi og einhverjir þurfi að taka þau að sér.

Við þurfum náttúrulega svo sannarlega á þeim að halda. Einhvers staðar heyrði ég að það sé allt að 7 þúsund ný störf sem við þurfum að manna. Hverjir ætla að fara í þau störf? Ég er ansi hrædd um að við þurfum mikið af góðu fólki erlendis frá til að manna þau störf þannig að við getum verið þakklát fyrir að fá allan þennan mannauð til Íslands.

segir Edda og bætir við að mikilvægt sé að tekið sé tillit til þess hvaðan fólk er að koma sem vill setjast hér að. Sumir hafi gengið í gegnum skelfilega hluti sem tekur sinn toll. Þetta tekur Sólveig undir en segir það misjafnt eftir einstaklingum hvernig aðstæður þeirra eru og ekki megi gera ráð fyrir því að allir sem hingað komi sem flóttamenn hafi gengið í gegnum áföll.

Flóttafólk er mannauður

Aðspurð að því hvort að flóttafólk sé jaðarhópur segir Edda að þetta sé sannarlega viðkvæmur hópur en ekki megi gleyma því að þetta sé fólk sem var virkir þátttakendur í sínu samfélagi sem það hafi neyðst til að flýja. Þarna sé mikill mannauður á ferðinni sem nauðsynlegt sem sé að virkja í íslensku samfélagi. Það hafi farið úr sínu félagslega neti og það þurfi að hjálpa því að koma því upp á nýjan leik.

Tryggja þurfi að það fólk sem hér komi sem flóttamenn verði ekki utanveltu í samfélaginu og einangrast. Tungumálið er mikil hindrun fyrir margar sem og skortur á upplýsingum til nýrra íbúa sem Edda segir viðvarandi vandamál sem verði að bæta, einkum um það hvernig samfélaginu er háttað hér á landi.

Sólveig segir að hér á árum áður hafi verið lögð áhersla á að aðlaga flóttafólk að íslensku samfélagi en nú sé þetta hugsað sem gagnkvæm aðlögun, „þannig að við séum líka forvitin um þeirra menningarheim“ eins og hún orðar það. Edda og Sólveig segja að tækifæri felist í því að fá fólk frá öðrum menningarheimum hingað til lands, af því megi læra mikið.

Ísland tekur vel á móti flóttafólki

Aðspurðar að því hvort að Ísland sé að gera eitthvað öðruvísi í móttöku flóttafólks segir Sólveig að við höfum tækifæri til að gera hlutina betur vegna þess litla fjölda sem hingað kemur og smæð samfélagsins. Edda nefnir einnig Rauða krossinn sem hefur staðið fyrir verkefni sem kallast stuðningsfjölskyldur, þar sé frábært starf unnið. Að þeirra mati er það ekki hinn litli fjöldi flóttafólks sem veldur því að hægt sé að taka vel á móti fólkinu, það væri hægt að gera jafn vel þó að fleiri kæmu hingað og þær vilja báðar að tekið sé við fleiri flóttamönnum.

Fordómar eru vandamál

Sólveig segir að móttökurnar sem flóttafólkið sem hún hafi tekið á móti og sest hafi að í Hveragerði og á Selfossi hafi verið frábærar. Hún verði samt sem áður var við það úti í samfélaginu að fólk sé ekki hrifið af komu flóttafólks og að fordómar, byggðir á vanþekkingu séu vandamál. Edda segir að fólk sé forvitið og það sé mikilvægt að miðla upplýsingum:

Við erum alveg að sjá það og við finnum það að  viðhorfin eru  neikvæð hjá mörgum og það sem er að gerast þetta voru einstaklingar sem maður sá ekki andlitin, núna erum við að sjá andlitin og fólk er farið að tjá sig meira. Það þarf náttúrlega bara að horfa á hvað er að gerast í heiminum. Við þurfum að vinna svolítið með þessi viðhorf því við þurfum á þessu fólki að halda.

Við gleymum því oft hvað þetta er ofboðslega mikill mannauður og við eigum svo margt sameiginlegt með öllu þessu fólki, það er þetta sammannlega. Við erum allt of oft að horfa á það sem er ólíkt. Við eigum að horfa miklu meira á það sem sameinar okkur, það sem er líkt og við megum heldur ekki gleyma því að við þurfum á öllu þessu fólki að halda,

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð