fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Eyjan

Vilhjálmur og Ragnar: Óhjákvæmilegt að segja upp kjarasamningum – Takk fyrir að slátra SALEK

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 27. júní 2017 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Samsett mynd/DV

„Það er morgunljóst að fjölmargir af okkar félagsmönnum eru agndofa og æfir af reiði yfir þeirri ákvörðun kjararáðs að hækka enn og aftur þá sem heyra undir kjararáð um allt að 300 þúsund á mánuði með afturvirkni sem nær í sumum tilfellum allt að eitt og hálft ár aftur í tímann.“

Þetta segir í pistli Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR og Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA í tilefni af fréttum um afturvirkar hækkanir Kjararáðs. Vilja verkalýðsleiðtogarnir vita hvar þeir sem vara við of miklum launahækkunum séu nú þegar verið sé að hækka laun embættismanna um meira en laun verkamanns á mánuði:

Við skiljum reiði og gremju okkar félagsmanna fyllilega í ljósi þess að í hvert sinn sem kjarasamningar verka- og verslunarfólks eru lausir þá skella þessir snillingarnir frá Samtökum atvinnulífsins, Seðlabankanum og fjármálaráðuneytinu á fóninn hræðsluáróðursplötunni þar sem lög eins og „ekki má ógna stöðugleikanum“ og „stöðva verður höfrungahlaupið“ er að finna!

Það er hins vegar athyglisvert að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Seðlabankans, fjármálaráðneytisins og ráðamenn almennt hafa ekki miklar áhyggjur af „stöðugleikanum“ né „höfrungahlaupinu“ þegar kjararáð hækkar laun um hundruð þúsunda á mánuði með afturvirkni sem nemur milljónum.

Það megi þó þakka Kjararáði fyrir að hafa séð „algerlega um að slátra endanlega öllum hugmyndum um nýtt vinnumarkaðsmódel í anda Salek samkomulagsins“ og nú séu yfirgnæfandi líkur á að kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði verði sagt upp í febrúar á næsta ári:

Það er mat okkar að það sé útilokað fyrir verkalýðshreyfinguna í heild sinni annað en að sækja sambærilegar kjarahækkanir handa almennu launafólki í ferbrúar á næsta ári og kjararáð hefur nú úthlutað þeim sem heyra undir ráðið.

Það er sem sagt mat okkar að útilokað sé fyrir forystu ASÍ að segja ekki upp kjarasamningum í febrúar á næsta ári og við í verkalýðshreyfingunni verðum síðan að sækja af alefli sambærilegar kjarabætur til handa almennu launafólki því þetta óréttlæti og misskipting í íslensku samfélagi er ekki hægt að láta átölulaust stundinni lengur.

Kjararáð hefur lagt línurnar hvað launabreytingar varðar!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu