Andri Þór Sturluson varaþingmaður Pírata segir að það eina sem fólk sem sé á móti sýnilegum vopnaburði lögreglu geti gert sé að hringja í lögregluna og tilkynna um grunsamlega vopnaða menn. Þegar það sé gert í hvert skipti sem sjáist í lögreglumann vopnaðan byssu þá neyðist ríkislögreglustjóri að endurskoða að hafa vopnaða lögreglumenn á almannafæri. Hefur ríkislögreglustjóri sagt að sýnilega vopnaðir lögreglumenn verði á fjölmennum samkomum í sumar, en mikið hefur verið rætt um vopnaburð lögreglu í litahlaupinu og á þjóðhátíðardaginn.
Það sem við getum gert sem erum á móti sýnilegum vopnaburði lögreglunnar, er að hringja á lögregluna og tilkynna grunsamlega vopnaða menn alltaf þegar við sjáum byssur, sama hver ber þær. Ef nógu margir hringja stöðugt í Neyðarlínuna vegna ógnandi manna með skotvopn þá geta þeir þetta ekki,
skrifar Andri Þór, birti hann skrif sín bæði á sinni persónulegu Fésbókarsíðu og á Pírataspjallinu. Hugmynd varaþingmannsins hefur fengið blendin viðbrögð og hefur honum verið bent á að ef neyðarlínan verði teppt í mótmælaskyni þá geti það komið niður á þeim sem þurfa nauðsynlega á þjónustunni að halda. Ekki þarf mikið til, en DV greindi frá því um helgina að maður á níræðisaldri hafi nauðsynlega þurft á Neyðarlínunni að halda en það var ekki svarað fyrst um sinn vegna anna og manneklu, þurftu þeir sem komu að manninum að bíða í 7 mínútur frá fyrsta símtali áður Neyðarlínan svaraði. Andri segir að algengt sé að mótmælendur hindri framgang lögreglu í hefðbundnari mótmælum og því yrði þetta ekki einsdæmi, mótmælin þurfi heldur ekki að standa lengi:
Spurningin sem við glímum við er hvað er mikilvægt og hvað erum við tilbúin að gera. Í þessari litlu vangaveltu minni myndu 20 mínútur duga til að gera lögregluna afturreka með byssurnar.