Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra og utanríkisráðherra, að veitt verði 40 milljóna króna framlag til Grænlendinga í kjölfar þess gríðarlega tjóns, sem varð í kjölfar berghlaups í Karrat firði í sveitarfélaginu Qaasuitsup á vesturströnd Grænlands síðastliðinn laugardag, 17. júní.
Sjá frétt: Jarðskjálfti og flóð á Grænlandi
Í framhaldi af atburðinum var því lýst yfir af hálfu almannavarna Grænlands að hætta væri á frekari skriðuföllum og lögreglan á Grænlandi hefur haft mikinn viðbúnað vegna málsins og fengið liðsstyrk frá Danmörku. Utanríkisráðherra Íslands ræddi við utanríkisráðherra Grænlands þann 18. júní sl. og bauð þegar fram aðstoð og stuðning íslenska ríkisins, jafnframt því að votta grænlenska ráðherranum samúð sína vegna atburðarins.
Geysimikil berghlaup úr fjallshlíðunum við Uummanaq-firðina er ástæða flóðbylgjanna sem skullu á ströndum þar um helgina. Myndband hefur verið birt sem sýnir að heilu fjallshlíðarnar hafa hrunið í hafið.
Sjá frétt: Gríðarstórt berghlaup ástæða flóðbylgja á Grænlandi
Almannavarnir Grænlands hafa leitað til aðalræðisskrifstofu Íslands í Nuuk og óskað eftir aðstoð eða leiðbeiningum íslenskra jarðvísindamanna varðandi það hvernig hægt væri að koma upp sjálfvirkum búnaði sem nota mætti til viðvörunar ef frekari berghlaup yrðu á svæðinu. Í framhaldi af þessari beiðni var haft samband við Veðurstofu Íslands og komið á sambandi á milli vísindamanna Veðurstofu Íslands og almannavarna. Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvort grænlensk stjórnvöld muni óska eftir frekari aðstoð vegna þessa.
Þessi atburður hefur snert við okkur Íslendingum og það er mikilvægt að við veitum Grænlendingum stuðning við þessar erfiðu aðstæður og sérstaklega ánægjulegt ef stofnanir okkar geta komið að uppbyggingarstarfi og úrbótum sem unnið verður að í framhaldinu
sagði Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, í kjölfar samþykktar ríkisstjórnarinnar í morgun. 40 milljóna króna framlagi Íslands verður varið til stuðnings uppbyggingarstarfi fyrir þá íbúa í Qaasuitsup sveitarfélaginu sem orðið hafa fyrir tjóni vegna hamfaranna. Auk þess verður Veðurstofu Íslands, eða annarri þar til bærri stofnun, gert kleift að veita nauðsynlega aðstoð varðandi uppsetningu viðvörunarbúnaðar, verði óskað eftir því.