fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Eyjan

„Þið ástundið bara ömurlega pólitík og eruð mestmegnis á móti öllu“ – Borgarfulltrúi Vinstri grænna um minnihlutann

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 6. júní 2017 16:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Halldór Halldórsson.

Fyrir helgi var tilkynnt um aðgerðir í fjórtán liðum til að takast á við vandann í húsnæðismálum með svokölluðum húsnæðissáttmála. Sáttmálinn er unninn í samstarfi ríkisstjórnarinnar og fulltrúa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Á borgarstjórnarfundi fyrr í dag voru atkvæði greidd um húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til 2020 og greiddu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina atkvæði gegn henni. Heitar umræður hafa spunnist um þessa atkvæðagreiðslu og hefur hart verið tekist á um hana.

Á Facebook síðu sinni gerir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna úrslit atkvæðagreiðslunnar að umtalsefni og segir:

Jæja. Línur geta ekki verið skýrari í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og flugvallavinir eru á móti húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Og Sjálfstæðismenn eru líka á móti tillögum sem unnar voru í samvinnu við þá sjálfa í ríkisstjórn.

Þessir tveir flokkar eru ekki lausnin þegar það kemur að húsnæðismálum borgarinnar. Þeir eru vandinn. Þeir hafa enga framtíðarsýn, eru íhaldssamir og halda að markaðurinn leysi allt. Engin plön. Ekkert. Ég vona svo sannarlega að þessir flokkar fái ekki að ráða nokkrum hlut um framtíð Reykvíkinga um ókomna tíð.

Munurinn á hægri og vinstri er aldrei meiri en þegar við ræðum framtíðina og húsnæðismálin.

Þessari færslu svarar Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og segir að „við getum ekki stutt fleiri leiksýningar af hálfu meirihlutans í Reykjavík í þessum húsnæðismálum.“ Hann og samflokksfólk hans hafi lagt til ýmsar lausnir sem meirihlutinn hafi ávallt fellt og biðin eftir félagslegu húsnæði hafi aukist úr 400 manns árið 2014 í 1000 manns núna, á valdatíð núverandi meirihluta.

Þessar athugasemd svarar Líf um hæl og segir:

Þið ástundið bara ömurlega pólitík og eruð mestmegnis á móti öllu.

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi. Mynd/DV

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina hafnar þessum fullyrðingum borgarfulltrúa Vinstri grænna. Hún segir það með öllu ósatt að hún eða aðrir í minnihlutanum séu andsnúnir uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík, það sé meirihlutinn hins vegar og hann hafi gert illt verra með aðgerðaleysi og röngum ákvörðunum síðastliðin þrjú ár.

Það er skömm að VG hafi tekið þátt í þessum leiksýningum borgarstjóra í 3 ár. Eins og þú veist Líf hefur orðið 41% aukning á biðlista eftir almennum félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík á 1 og 1/2 ári á vaktinni ykkar,

segir Guðfinna í ummælum við færsluna.

Halldór Halldórsson birti á Facebook síðu sinni stöðuuppfærslu þar sem hann gerir grein fyrir atkvæði minnihlutans. Rökstuðningur hans er einfaldur, hér er á ferðinni „enn ein leiksýning meirihluta Pírata, Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna í þessum húsnæðismálum. Við í minnihlutanum tökum ekki þátt í endalausum glærusýningum en engum lausnum.“

Ekkert hafi verið hlustað á tillögur minnihlutans um að úthluta lóðum í Úlfarárdal þar sem borgin á landsvæði og þær ítrekað felldar. Líkur hann pistli sínum með orðunum:

Það flytur enginn inn í glæruhús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu