fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Eyjan

Kári segir Óttarr Proppé hafa verið líkt og í kannabisvímu á þingi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 6. júní 2017 11:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.

Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson er ekki þekktur fyrir annað en að tala tæpitungulaust. Hann gerir upp nýlokið þing í grein ber titilinn „Heppin þjóð“ og sparar þar ekki stóru orðin. Greinilegt er að hann er lítt ánægður með störf þingsins, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. Segir hann þingmenn hafa „yfirleitt hljómað eins og hann hafi teygað vökva af þeirri gerð sem yljaði mönnum á sveitaböllum“.

Í grein Kára, sem birtist í Fréttablaðinu segir að lokadagar þingsins hafi verið um margt líkir sveitaböllum hér áður fyrr. Þingmenn hafi gjammað hátt en lítið sagt af viti og erfitt hafi verið að skilja nokkuð sem úr munni þeirra vall. Það segir hann hafa verið vegna þess háværa undirtóns sem til kom frá þeim 62 slæmu samviskum sem samankomnar eru í þinghúsinu. Einn þingmaður sé þó fjarverandi, „að leita að sænskum blaðamanni sem fékk hann til þess að segja ósatt fyrir framan myndavélar.“

Einn ráðherra hefur þó að mati Kára hljómað eins og hann sé undir áhrifum annarra efna en þeirra sem fólk neytti á sveitaböllum forðum daga. Það er Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðismálaráðherra var ein þeirra en hann hljómaði að vanda eins og hann væri stóned, skakkur, freðinn eða hvað svo sem menn vilja kalla það ástand sem fólk fer í við neyslu kannabis,

skrifar Kári í Fréttablaðið.

Óttarr talaði vel um enduruppbyggingu í heilbrigðiskerfinu en vandamálið væri peningaskortur, hann virðist hins vegar enga hugmynd um það hafa hvernig afla mætti peninga til endurreisnar. Er það vegna þess að hann vann lengi í bókabúð, einungis með reynslu af því hvernig fólk nýtir fé sitt en ekki hvernig það aflar þess spyr Kári. Aldrei hafi verið betra ástand í þjóðfélaginu til að hækka skatta en nú en það virðist Óttari vera með öllu hulið.

Að standa við loforð sem veitt voru í kosningabaráttunni virðist ekki skipta heilbrigðisráðherrann máli. Nýsamþykkt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til fimm ára er að mati Kára svik við flest, ef ekki öll loforð hennar í aðdraganda kosninga og virðist sem forsvarsmönnum hennar sé helst kappmál að verða versta ríkisstjórn Íslands.

Stjórnarandstaðan fær varla mikið hærri einkunn hjá Kára, „gagnslaus, hugmyndasnauð og málstola.“ Frá henni hafi engar tillögur komið um uppbyggingu í heilbrigðismálum, aðgerðir gegn misskiptingu auðs eða mörgum öðrum stórum málum.

Við hefðum getað endað með núverandi stjórnarandstöðu í ríkisstjórn og það er staðreynd að þótt ríkisstjórnin sé býsna slöpp er stjórnarandstaðan líklega verri,

segir Kári og er ljóst að hann er býsna óánægður með stjórnmálastéttina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu