Á morgun, laugardag, klukkan 12 á hádegi munu tvær konur frá kúrdíska hluta Tyrklands flytja fyrirlestra í Iðnó. Þetta eru þær Ebru Günay, lögfræðingur, sem starfað hefur sem hluti af lögfræðingateymi Öcalans, hins fangelsaða leiðtoga Kúrda sem haldið hefur verið í einangrun á eyjunni Imrali í Tyrklandi frá árinu 1999. Hún hefur sjált mátt dúsa í fangelsi í fimm ár.
Hinn fyrirlesarinn er Havin Guneser verkfræðingur sem þýtt hefur rit hins fangelsaða Öcalans á ensku og er afar fróð um málefni Kúrda.
Hér má sjá Facebook síðu viðburðarins en hann fer fram á ensku en fundarstjórinn er Ögmundur Jónasson.