fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Svona sleppur þú við vegatolla Jóns Gunnarssonar

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 28. júlí 2017 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gunnarsson samgönguráðherra. Samsett mynd/Getty

Jón Gunnarsson samgönguráðherra hefur komið á fót starfshóp til þess að kanna hvernig hátta megi umfangsmiklum framkvæmdum á stofnleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu. Líkt og komið hefur fram er eitt verkefna hópsins er að skoða þann kost að koma upp vegtollahliðum á fjölförnum leiðum í kringum höfðborgarsvæðið. Í samtali við DV í dag segir Jón að hann viti ekki hvað gjaldið verði hátt, en ekki hærra en 400 krónur. Segir hann að aðallega sé verið að skoða þrjár leiðir inn og út af höfuðborgarsvæðinu:

 Það eru leiðirnar austur fyrir fjall að Selfossi, norður að Borgarnesi og suður að Keflavíkurflugvelli. Meginleiðirnar inn og út úr höfuðborgarsvæðinu á þessu svæði. Þar sem umferðin er mest og slysatíðnin hæst,

Ef tollhliðið á norðurleiðinni verður handan Þingvallarafleggjarans þá opnast sá möguleiki að keyra norður með því að beygja inn á Þingvallarafleggjarann og þaðan inn í Kjósárskarð til að komast inn í Hvalfjörð. Frítt verður svo inn í Hvalfjarðargöngin á næsta ári. Skjáskot af ja.is.

sagði Jón við DV. Erfitt reyndist að fá upplýsingar um hvar vegatollarnir eiga að vera, hvort það þurfi að keyra í gengum tollhlið áður en beygt er út á Þingvallarafleggjarann á norðurleiðinni eða hvort keyra verði í gengum tollhlið áður en hægt er að beyja í átt að Nesjavöllum á suðurleiðinni. Jón hafnar því hins vegar að höfuðborgarsvæðinu verði lokað alfarið og segir að hægt verði að keyra Krýsuvíkurleiðina til og frá Hafnarfirði til að komast á Suðurlandið og á Reykjanesið. Margir vilja þó meina að þetta sé aðferð ráðherra til að setja þrýsting á fjárveitingarvaldið í kjölfar niðurskurðar til samgöngumála á síðustu fjárlögum, ef ekki verði sett aukið fjármagn til samgöngumála þurfi hann að afla tekna með aðgerðum sem þessum.

Miðað við orð ráðherra hefur Eyjan útbúið kort sem sýnir hvar tollhliðin gætu verið og leiðina sem hægt er að keyra til að sleppa við vegatolla Jóns Gunnarssonar:

Jón segir að það verði hægt að keyra Krýsuvíkurleiðina til að komast til Suðurnesja og á Suðurlandið. Rauðu punktarnir merkja tollahlið. Kort/ja.is

Ef svo fer að tollhliðin á suður- og norðurleiðinni verði handan afleggjaranna til Nesjavalla og Þingvalla þá bætast við fleiri möguleikar:

Erfitt getur reynst að forðast vegtollana allt árið þar sem vegirnir geta verið nokkuð slitnir og ekki opnir fyrir umferð allt árið. Kort/ja.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Ísland og Evrópusambandið

Könnun – Ísland og Evrópusambandið