fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Eyjan

Bubbi Morthens til ríkisskattstjóra: „Lestu eitt ljóð eftir Jónas og kafla eftir Kiljan“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 7. júlí 2017 13:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Eggert Þórðarson og Bubbi Morthens. Samsett mynd/DV

Bubbi Morthens tónlistarmaður hvetur Skúla Eggert Þórðarsson ríkisskattstjóra til að lesa eitt ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og einn bókarkafla eftir Halldór Kiljan Laxness. Tilefni hvatningar Bubba er viðtal Fréttablaðsins við Guðnýju Halldórsdóttur um skiptin á dánarbúi Halldórs Laxness en erfingjar hans hafa staðið í stappi við skattayfirvöld vegna skiptanna.

Þegar Auður Laxness lést árið 2012 óskuðu erfingjar Nóbelsskáldsins eftir einkaskiptum á búi hjónanna, því hafnaði embætti sýslumanns þar sem hann taldi verðmæti höfundarréttar vanmetin. Vildu erfingjarnir meina að þau væru metin á rúmar 500 þúsund krónur en sýslumaður 28 milljónir króna. Erfingjarnir kærðu niðurstöðuna til yfirskattanefndar sem tók ekki efnislega til málsins, vill Guðný meina að enginn íslenskur listamaður hafi lent í viðlíka ofsóknum af hálfu skattayfirvalda og faðir hennar, ofsóknir sem nái út yfir gröf og dauða.

Í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag segir Bubbi að skattayfirvöld eigi að láta höfundarrétt Halldórs Laxness í friði:

Í raun ætti ríkið að þakka fyrir sig og láta höfundarrétt hans í friði. Þetta gerist á sama tíma og græðgisvæðingin er komin á fullt aftur, bara nokkrum árum eftir hrun. Þetta lið sem kostaði þjóðina ævisparnaðinn situr á tindi siðrofsins þar sem fjár málageirinn treður ofan í ginið á soltnum úlfum í Armani-jakkafötum milljarða bónusum sem enginn þeirra hefur unnið sér fyrir heldur virðast þetta vera lög skrifuð í blóð fjármálageirans,

segir Bubbi. Segir hann að nú séum við komin á sama stað og við vorum fyrir hrun, þar sem hinir ríku verði ofsaríkir og hinir ofsaríku verði stjarnfræðilega ríkir:

Panamakóngar fengu boð frá Seðlabankanum um að koma heim með svart fé sitt og fjárfesta í eignum á hrakvirði og græða ævintýralega. Og siðrofið heldur áfram. Meðan heilbrigðiskerfinu blæðir og menntakerfið skrimtir þá er skatturinn að pönkast á erfingjum nóbelsskáldsins.

Bubbi segir að Halldór Laxness sé alvöru verðmæti. Það sem hann hafi skrifað, það sem hann hafi fært þjóð sinni sé svo stórt, svo mikil fenglegt, að það verði ekki verðlagt:

Sem þjóð eigum við sumum svo stóra skuld að gjalda að hún verður aldrei greidd. Þá dettur mér strax í hug Jónas Hallgrímsson og Halldór Kiljan Laxness. Án þeirra verka, þeirra framlags til íslenskrar menningar værum við hnípin þjóð í vanda.

Hvetur hann því Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra til að lesa eitt ljóð eftir Jónas og einn bókarkafla eftir Halldór Kiljan:

Í fúlustu alvöru: Áður en þú leggst til hvílu í kvöld, ríkisskattstjóri, lestu þá eitt ljóð eftir Jónas og svo sem einn kafla eftir Kiljan. Frjálst val! Og auðgaðu anda þinn og fylltu hjarta þitt dásamlegu ljósi. Skoðaðu svo alla þessa bónusgæðinga og Panamariddara og sjáðu sannleikann í hjarta þínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“