Kynning á 100 verkefnum sem verða á dagskrá 100 ára sjálfstæðis og fullveldisafmæli Íslands á næsta ári fór fram í Safnhúsinu við Hverfisgötu í dag, að viðstöddum fulltrúum verkefna af landinu öllu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá afmælisnefndinni:
Á næsta ári fagnar þjóðin aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Afmælisnefnd var falið, samkvæmt þingsályktun, að standa fyrir hátíðarhöldum um land allt. Var ákveðið að fara þá leið að leita til landsmanna um mótun dagskrár afmælisársins. Auglýst var eftir tillögum að verkefnum á dagskrána. Alls bárust 169 tillögur og var sótt um rúmlega 280 milljónir króna. Í dag voru kynnt þau 100 verkefni sem valin voru úr innsendum tillögum. Viðstaddir voru rúmlega 100 gestir, fulltrúar verkefna af öllu landinu. Lýsingu á öllum verkefnunum má sjá í hlekknum neðst í fréttinni.
Verkefnin sem valin voru á dagskrána eru fjölbreytt og verða unnin um land allt. Þau bera með sér hugmyndaauðgi og gefa mynd af öflugu menningar- og atvinnulífi í landinu. Verkefnin spanna allt litrófið; þau eru stór og umfangsmikil eða minni um sig, en öll styrkja þau ímynd þjóðarinnar sem sjálfstæðrar og fullvalda þjóðar í samfélagi þjóðanna. Mörg verkefnanna fela í sér samstarf einstaklinga, samtaka og stofnana hér á landi og erlendis, en sérstaklega var hvatt til nýsköpunar í áherslum sem nefndin kynnti á vef sínum þegar auglýst var eftir verkefnum á afmælisdagskrána.
Þátttökuverkefni
Þrátt fyrir að nú séu kynnt verkefni á dagskrá afmælisársins er enn hægt að taka þátt í dagskránni. Um miðjan desember verður opnað fyrir skráningu þátttökuverkefna á vef afmælisársins. Þau geta verið stór eða lítil, viðburðir eða samfélagsverkefni.
Nú þegar eru komin nokkur þátttökuverkefni á dagskrá afmælisársins. Má þar nefna Fullveldiskökuna, sem Landssamband bakarameistara ætlar að þróa; Fullveldisbörnin – aldarafmæli,sem Hrafnista stendur fyrir, og Umhverfis-Suðurland, sem Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi standa fyrir.