fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Styrmir um fjórflokkinn: „Óformlegt þagnarbandalag um Kjararáð“

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 13. mars 2018 16:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Gunnarsson

Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, segir að þingmenn hinna hefðbundnu stjórnmálaflokka hafi gert með sér óformlegt þagnarbandalag um Kjararáð og vísar í launahækkanir Kjararáðs til þeirra sjálfra. Hann segir þó að kosning Sólveigar Önnu Jónsdóttur hafi rofið þann þagnarmúr:

 

„En jafnframt er ljóst að nú síðustu daga í kjölfar úrslita í stjórnarkjöri Eflingar hefur sá þagnarmúr rofnað og augljóst að hann verður ekki endurreistur.

Það þýðir að annað hvort verður ríkisstjórnin að horfast í augu við erfiða stöðu núna eða standa frammi fyrir því að allt fari á annan endann á vinnumarkaði snemma á næsta ári,“

segir Styrmir. Þá segir hann einnig ólíklegt að stjórnarsamstarfið lifi af slík átök:

„Og rétt að benda forystumönnum stjórnarflokkanna á að líkurnar á því að stjórnarsamstarfið muni standast slík átök eru ekki miklar.

Vinstri grænir munu ekki hafa pólitískt bolmagn til þess að sitja áfram í ríkisstjórn með núverandi samstarfsflokkum við þær aðstæður. Bakland flokksins mundi ekki sætta sig við það.

Þess vegna mun framtíð þessa stjórnarsamstarfs ráðast af aðgerðum eða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar næstu mánuði.

Það þýðir ekki að bíða fram á næsta ár.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Orðræðan hefur pólaríserast – söluvænar fyrirsagnir á kostnað innihalds

Halla Hrund Logadóttir: Orðræðan hefur pólaríserast – söluvænar fyrirsagnir á kostnað innihalds
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Litli ljóti gráðugi leigusalinn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Litli ljóti gráðugi leigusalinn