

Hin 22 ára Lauren hefur hlotið gríðarlega mikla athygli fyrir ráð sem hún gaf á síðunni Tublr. Lauren birti þar skjáskot af Snapchat sem hún hafði sent vinum sínum í tengslum við sturtuferð. Hana óraði þó ekki fyrir athyglinni sem myndirnar myndu fá en færslunni hefur verið deilt um allan heim.
Lauren þurfti að fara í sturtu áður en hún færi út um kvöldið en vildi ekki skemma þurfa að þrífa af sér allan farðann sem hún hafði verið með á sér þann daginn. „Hárið mitt var feitt í lok dagsins. Ég var förðuð og vildi fara út með vinum mínum en ég var ekki að fara að sóa öðrum gerviaugnhárum og eyða 45 mínútum í að blanda augnskugga.“
Hún setti því á sig kafaragleraugu og skellti sér svo í sturtuna. Augnförðunin hélst óaðfinnanleg og hún gat þvegið líkamann og hárið án þess að óttast að skemma hana. Þessi ráðlegging hennar sló í gegn og hafa margir notað sömu aðferð síðan.

Nokkrir gagnrýndu Lauren fyrir að fatta ekki að nota þurrsjampó en hún benti á að þar sem hún er með permanett var það ekki valmöguleiki og stundum langi fólki líka að skola af líkamanum án þess að þurfa að farða augun upp á nýtt. Einhverjir höfðu líka áhyggjur af rauða farinu eftir gleraugun en Lauren sagði að farið hafi horfið á meðan hún klæddi sig.