fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026

Hönnunarfyrirtæki reynir að gera hakakrossa „töff“ – „Við höfum virkilega gaman af hakakrossinum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 8. ágúst 2017 14:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hönnunarfyrirtækið KA Designs er að gera allt brjálað um þessar mundir á netinu. Af einhverjum ástæðum fannst þeim kominn tími til „til að taka hakakrossinn til baka“ og kynna „hinn nýja hakakross.“ Mic greinir frá.

KA Designs settu inn á vefsíðu sína boli og peysur sem átti að selja. Framan á fötunum er hakakrossinn, merki Nasista, prentaður í regnbogalitum ásamt orðum eins og „zen,“ „ást“ og „friður.“

Hér má sjá fötin umræddu.

KA Designs tilkynnti að „hakakrossinn væri að koma til baka […] við kynnum: nýja hakakrossinn.“ Fyrirtækið gaf einnig út myndband á Facebook þar sem það útskýrði af hverju það væri að „reyna að taka hakakrossinn til baka.“

Þar kom meðal annars fram að „hakakrossinn er 5.000 ára gamall. Þetta er merki friðar. Þetta er merki ástar. Þetta er merki lukku,“ og svo framvegis. Síðan er minnt mann á (eins og maður þarf áminningu) að Nasistarnir gerðu tilkall til merkisins og breyttu því í hatur, ótta, stríð, kynþáttahatur og fleira.

Reiði netverja náði nýjum hæðum eftir að myndbandið kom út og bolirnir fóru í sölu á Teespring. Fljótlega fór myllumerkið #BoycottTeespring að „trenda“ á Twitter og fólk var hvatt til að sniðganga verslunina. Teespring ákvað að taka bolina úr sölu og er þá hvergi hægt að versla vörurnar frá KA Designs eins og er.

Bolirnir hafa einnig fangað athygli samtaka Gyðinga í Ísrael en formaður samtakanna tjáði sig um málið á Facebook:

„Áttið þið ykkur ekki á því hversu viðbjóðslegt og móðgandi þetta er? Þetta er ekki list né frjáls umræða. Þetta er ógeðslegt og rosalega særandi.“

Í yfirlýsingu frá KA Designs til Mic kom fram: „Við höfum virkilega gaman af hakakrossinum. Ekki vegna neinna merkinga sem eru tengd við hann, heldur vegna útlits og lögun hans. Hins vegar eru sterk tengsl á milli hakakrossins og gildum Nasista sem eru óslítandi. Okkur fannst við ekki frjáls. Af réttri ástæðu. Þannig við enduðum með að nota táknið með það markmið að deila andstæðum gildum: ást, friður og frelsi. Verkefnið okkar vill tjá sigur ástarinnar og mannúðar gegn hatri og nasisma yfir höfuð.“

Umræðan snýst ekki aðeins um að þessi hönnun er hræðilega móðgandi og særandi heldur einnig að neó-Nasistar munu líklegast grípa tækifærið, kaupa klæðnaðinn og nota hann með þeirri merkingu eins og Hitler áætlaði. KA Designs er alveg sama ef það gerist og í yfirlýsingu til Dazed sögðu talsmenn fyrirtækisins: „Okkur finnst skilaboðin á klæðnaðinum okkar skýr: friður, ást og frelsi sigrar hatur, stríð og fordóma. Ef einhver neó-Nasisti fer út í bol frá okkur, þá mun hann vekja upp sömu spurningar og umræðu og kommúnisti sem klæðist sama bolnum. Þess vegna er okkur alveg sama um hver kaupir bolina.“

Á Vísindavefnum er farið yfir sögu og merkingu hakakrossins. Þar kemur meðal annars fram að „vegna óheppilegra tengsla hakakrossins við nasisma er nú bannað með lögum að sýna merkið í Þýskalandi.“

Hvað segja lesendur um málið?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti á ótrúlegan hátt náð leiknum þrátt fyrir skurðinn

Gæti á ótrúlegan hátt náð leiknum þrátt fyrir skurðinn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.