
Það er ekkert leyndarmál að Kim Kardashian er markaðssnillingur með meiru. Hún gaf nýlega út fyrstu vörurnar í nýju snyrtivörulínunni sinni KKW Beauty. Til þess að auglýsa vörurnar þá hefur hún fengið þekkta förðunarfræðinga á YouTube til að vinna með sér myndbönd, eins og Jaclyn Hill og Patrick Starrr. Nikkie Tutorials hefur einnig gert myndband með henni en það er ekki komið á YouTube.
Í myndbandinu með Patrick Starrr farðar hann hana á meðan þau spjalla um allt á milli himins og jarðar. Hann meðal annars kennir henni að „twerka!“