fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026

Ljósmynd Finns vekur athygli á Daily Mail – Hesturinn tvífari Sia

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. nóvember 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hestamynd: Finnur Andrésson.

Vefsíðan Dailymail í Bretlandi birti í byrjun nóvember hestamynd sem Finnur Andrésson áhugaljósmyndari tók og sagði hestinn líkjast mjög áströlsku söngkonunni Sia. Bæði væru með sömu hárgreiðsluna sem hyldi augu þeirra.

Finnur er búsettur á Akranesi og tók myndirnar þar, segir að hesturinn skemmtilegi hafi svo sannarlega lífgað upp á daginn hjá honum.

Hesturinn bæði ullaði og „hló“ svo sást í tennurnar þegar Finnur smellti af.

Mynd: Finnur Andrésson.

„Íslenski hesturinn er með einstakan karakter,“ er haft eftir Finni á Dailymail. „Ég var á rúntinum með myndavélina á Akranesi að leita að dýrum til að mynda. Ég sá hestinn við veginn og byrjaði að mynda hann og áður en ég vissi af var hann farinn að gretta sig og gera hljóð eins og hann væri að hlæja að mér.“

„Ég veit ekki hvað hann var að hugsa, en það var greinilega eitthvað skemmtilegt. Hann fékk mig til að brosa og lífgaði upp á daginn hjá mér.“

Finnur var í viðtali við DV fyrr á árinu.

FYRSTA VIÐURKENNINGIN Finnur með myndina af bátnum Höfrungi sem vann til verðlauna bæði heima og erlendis. Mynd: Finnur Andrésson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Örorkubætur kosta ríkissjóð tugi milljarða – Lítill en hækkandi hluti rennur til útlendinga

Örorkubætur kosta ríkissjóð tugi milljarða – Lítill en hækkandi hluti rennur til útlendinga
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.