fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Gætu flutt liðið frá Kanada til Las Vegas á næstunni

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 14:00

Muller er leikmaður liðsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framtíð Vancouver Whitecaps í MLS deildinni er í mikilli óvissu, en félagið gæti verið flutt til Las Vegas samkvæmt nýjustu fréttum vestanhafs.

Eigendur MLS ræddu stöðu félagsins á fundi fyrr í mánuðinum vegna þess sem kallað er „viðvarandi rekstrarvandi“ við að halda liðinu í Kanada. Whitecaps hefur verið til sölu frá því í desember 2024, en ekki hefur tekist að finna kaupanda sem vill halda félaginu í Vancouver.

Stærsta vandamálið snýr að heimavellinum BC Place, sem hefur verið talinn óhentugur vegna þess hversu oft þarf að deila honum með öðrum viðburðum.

Samkvæmt fréttum var mögulegur flutningur til Las Vegas helsti kosturinn sem ræddur var, og MLS hefur þegar átt samtöl við hóp sem vill koma liði á þann markað.

Þetta kemur þrátt fyrir góðan árangur Whitecaps á vellinum, en liðið komst meðal annars í úrslit bæði CONCACAF Champions Cup og MLS-bikarsins á síðasta ári.

Stuðningsmenn hafa mótmælt hugmyndinni harðlega og mætt með „Save the Caps“-skilti á leiki félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fjögur lið ræða við Bernardo – Eitt félag getur boðið miklu hærri laun en hin

Fjögur lið ræða við Bernardo – Eitt félag getur boðið miklu hærri laun en hin
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Konan sem vill stunda kynlíf tíu sinnum í viku vekur mikla athygli – Virðist vera komin með nýjan unnusta

Konan sem vill stunda kynlíf tíu sinnum í viku vekur mikla athygli – Virðist vera komin með nýjan unnusta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

FH-ingar segja fréttir kvöldsins ekki réttar – „Allt var þetta gert í samstarfi við Nike“

FH-ingar segja fréttir kvöldsins ekki réttar – „Allt var þetta gert í samstarfi við Nike“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Leggja allt kapp á það að framlengja við Kane

Leggja allt kapp á það að framlengja við Kane
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Guardiola lagði inn gott orð

Guardiola lagði inn gott orð
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun