

„Ég er mjög svekktur, við fáum víti sem við klúðrum en við vorum bara ekki nógu góðir í kvöld,“ sagði Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Vals eftir 2-1 tap liðsins gegn FH í kvöld.
Steven Lennon kom FH yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Patrick Pedersen jafnaði metin fyrir Val, tveimur mínútum síðar.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði svo sigurmark FH á 57 mínútu og munar nú einungis sex stigum á liðunum þegar átta umferðir eru eftir.
„Ég og Siggi þurfum að ræða þetta bara, ef það hefði komið annað víti þá hefði ég tekið það, hann var búinn að tala um það en við sjáum bara til með framhaldið.“
„Mér fannst frábært hvernig við svöruðum þessu en það er auðvitað fúlt að fá á sig mark úr föstu leikatriði og ég held að við höfum kannski fengið á okkur eitt mark í sumar úr föstu leikatriði.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan og neðan.