

„Við þurftum að vinna hérna í kvöld til þess að setja smá pressu á Valsarana og það tókst og núna þurfum við bara að halda áfram á sömu braut,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH eftir 2-1 sigur liðsins gegn Val í kvöld.
Steven Lennon kom FH yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Patrick Pedersen jafnaði metin fyrir Val, tveimur mínútum síðar.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði svo sigurmark FH á 57 mínútu og munar nú einungis sex stigum á liðunum þegar átta umferðir eru eftir.
„Við ætluðum bara að halda áfram að gera það sem við vorum að gera í fyrri hálfleik. Það var ekkert sérstakt rætt í hálfleik þannig, við vorum baráttuglaðir og unnum boltann framarlega á vellinum og við vorum góðir í dag fannst mér.“
„Við ætluðum að reyna klára leikinn, það var planið og svo náttúrlega vildum við reyna að pressa á þá ofarlega í staðinn fyrir að hleypa þeim alveg upp að markinu okkar.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan og neðan.