Manchester City heimsótti Burnley í dag í ensku úrvalsdeildinni en Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn hjá Burnley.
City hefur oft spilað betur en sömu sögu er að segja af Burnley sem hefur eftir leikinn ekki unnið í síðustu níu deildarleikjum. Danilo skoraði fyrra mark leiksins á 22 mínútu en það kom eftir stutta hornspyrnu. Boltinn kom út til Danilo sem var fyrir utan teiginn, bakvörðurinn hamraði honum upp í hægra hornið. Óverjandi fyrir Nick Pope í marki Burnley.
Bæði lið fengu góð færi til að skora í síðari hálfleik og átti Jóhann Berg nokkrar öflugar fyrirgjafir sem samherjar hans nýttu sér ekki.
Það var svo á 82 mínútu leiksins sem Jóhann Berg tryggði Burnley gott stig. Hann mætti á fjærstöngina og kláraði vel framhjá Ederson í marki City.
Jóhann hefur komið að sjö mörkum hjá Burnley á þessu tímabili, meira en nokkur annar leikmaður liðsins. Næsti maður hefur komið að fjórum mörkum.
Jóhann hefur lagt upp fimm mörk í deildinni og skorað tvö, gegn City og Liverpool á heimavelli.
Johann Berg Gudmundsson has been involved in 7 PL goals this season (2 goals, 5 assists), 3 more than any other @BurnleyOfficial player pic.twitter.com/mKXJQk3GnG
— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) February 3, 2018