fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433

Mourinho tjáir sig um hugsanlegt brotthvarf Zlatan

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 2. febrúar 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United hefur verið sterklega orðaður við LA Galaxy að undanförnu.

Samkvæmt miðlum á Englandi hefur hann nú þegar samið við bandaríska félagið og á að ganga til liðs við Galaxy í mars.

Jose Mourinho, stjóri United var spurður út í það á blaðamannafundi í dag hvort Svíinn væri á förum til Bandaríkjanna.

„Ég sé hann á hverjum degi, ég vinn ekki beint með honum en ég fylgdist með honum í dag sem dæmi,“ sagði Mourinho.

„Hann hefur aldrei minnst á neitt við mig og ekkert spurt mig um álit þannig að ég geri ráð fyrir því að þessir orðrómar séu bull.“

„Ég geri ráð fyrir því að heyra fréttir frá honum sjálfum og þar sem að ég hef ekki heyrt neitt þá á ég ekki von á því að hann sé að fara neitt,“ sagði Mourinho að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Í boði að fá 6 milljónir fyrir að horfa á sjónvarpið í rúman mánuð í sumar

Í boði að fá 6 milljónir fyrir að horfa á sjónvarpið í rúman mánuð í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir eigendum Chelsea til syndanna og segir þá hundsa söguna

Segir eigendum Chelsea til syndanna og segir þá hundsa söguna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa