

Roberto Firmino sóknarmaður Liverpool hefur verið gjörsamlega frábær á þessu tímabili.
Sóknarmaðurinn hefur bætt leik sinn mikið og er í hópi bestu framherja deildarinnar.
Vegna þess vill Jurgen Klopp stjóri Liverpool lengja og bæta samninga framherjans.
,,Það er mikilvægt fyrir báða aðila að gera þetta,“ sagði Klopp um málið.
,,Hann á skilið að spila í hverri viku og hentar okkar hugmyndafræði afar vel.“
,,Hann á skilið nýjan samning því hann leggur mikið á sig og hefur stigið upp.“