fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Eyjan

Diljá Mist: „Yfir 10 milljón!“ – Helgi Hrafn svarar: „Þá kemur þú og mótmælir því eina af viti“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. júní 2026 19:00

Helgi Hrafn Gunnarsson og Diljá Mist Einarsdóttir. Samsett mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók til máls á Alþingi í morgun um verndarsamkomulag Evrópusambandsins. „Reglur sem ganga út á það að dreifa álaginu af hælisleitendastraumnum, sem forsvarsmenn ESB hafa látið ganga yfir álfuna, milli ESB-ríkjanna. ESB-ríki munu standa frammi fyrir því vali að annað hvort taka á móti fleiri hælisleitendum eða greiða eins konar sektir. Bara annað hvort eða,” sagði hún í umræðum um útlendinga og lögreglulög.

„Yfir 10 milljón hælisumsóknir hafa borist ESB-ríkjunum undanfarinn áratug. Yfir 10 milljón! Þetta er það sem bíður okkar í fyrirheitna landinu ESB. Verður þetta meðal þess sem ríkisstjórnin ætlar að kynna fyrir landsmönnum varðandi Evrópusambandið?“

Helgi Hrafn: Tvisvar sinnum fleiri á Íslandi

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, setur stórt spurningamerki við þessar tölur og segir í athugasemd á Facebook að hlutfallslega miðað við höfðatölu hafi tvisvar sinnum fleiri umsóknir verið á Íslandi á því tímabili sem Diljá nefndi. Meðaltalið í ESB sé 0,22% miðað við fólksfjölda samanborið við 0,45% hér á landi.

„Það sem mér finnst merkilegt við málflutning þinn, er að þú nefnir tölur sem ættu að sýna að vandinn er bersýnilega stofnanalegur en ekki vegna svo mikils fjölda. Þetta er ekki einu sinni fólk sem fær hæli, þetta eru umsóknir,“ segir hann.

Nefnir hann sem dæmi að á Íslandi fæðast um 4.500 börn á ári en um 3.500.000 börn í Evrópusambandinu. „Samt er enginn að fríka út yfir því að þessi börn séu svo mikill dragbítur á öll velferðarkerfi, þrátt fyrir að vera ekkert nema dragbítur á allt hagkerfið í 16-20 ár eftir að hafa fæðst. Reyndar er frekar bent á að við séum að eignast of fá börn.“

Auðvitað eigi að dreifa álaginu

Þegar það komi mun færri sem sé langflest reiðubúið á vinnumarkað, jafnvel með mikla menntun, þá sé það ekkert vesen. „10.000.000 manns að sækjast eftir hæli yfir 10 ára tímabil, í 450.000.000 manna heimsálfu er einfaldlega ekki mikið, og reyndar helmingurinn af því sem sækir um hérlendis miðað við höfðatölu, þrátt fyrir að við séum eyja úti í hafsauga sem er ógerningur að komast til öðruvísi en með flugi eða skipi,“ segir hann.

Mistökin sem hafi verið gerð hafi verið að dreifa ekki álaginu yfir álfuna. „En þá kemur þú og mótmælir því eina af viti sem kollegar þínir í Evrópu hafa þó allavega drullast til að læra. Auðvitað á að dreifa álaginu, heila lexían af undangengnum áratug er mikilvægi þess að gera nákvæmlega það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum